Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1934, Blaðsíða 6

Ægir - 01.04.1934, Blaðsíða 6
92 ÆGIR stéttir landsins. Hér er viðkvæðið, það þarf að fræða fólkið, það á að veita því sem bezta menntun og það er rétt, en minnist nokkur á, að fiskimenn þurfi nokkra þá menntun í starfi sínu, sem þeir helzt þyrftu. Ekkert, mér vitanlega, hefur verið rætt um það, manna á með- al eða opinberlega, hvernig sú fræðsla ætti að vera, sem fiskimenn hefðu mesta gagnið af. Það plan hefur enn ekki séð dagsins Ijós og þó er verið að skjalla fiskimennina fyrir dugnað og kapp, en engum dettur í hug að meta þann dugn- að með nokkru því er einstaklingum stéttarinnar kæmi að notum og þá eink- um formannsefnum. Séu íslendingar al- mennt þeirrar skoðnnar að stýrimanna- próf geri menn færari í meðferð skipa, er á sjóinn er komið, viðhaldi þeirra og frágangi öllum, þá munu þeir hin eina siglingaþjóð, sem þannig hugsar. Stýrimannaskólinn í Reykjavik hefur enga undirbúningsdeild og er hennar þó sár þörf og hefur verið. Margir þeirra, sem þar stunda nám, hafa ekki notið annarar fræðslu en þeirrar, sem barna- skólar veittu þeim og flestu af því er gleymt. Um dagleg störf á skipsfjöl vita þeir ekki annað en það, sem þeir hafa séð og unnið að á skipum og bátum hér, hvort sem þau hafa verið framkvæmd rétt eða ekki. Gamlir siðir og venjur segja að öllu jöfnu til, hvernig verk eigi að vinna á skipsfjöl, engu síður en á jörð í sveit. Bóndanum þætti það léleg- ur ráðsmaður, sem ekki kynni að tinda hrifu eða slá á túni, en hér þykir það engu skifta, þótt stýrimaður á stórum og smáum mótorbátum kunni ekki að stanga kaðal, eða gera við, á réttan hátt, það sem slitnar eða aflaga fer á þilfari — og er hann þó ráðsmaður fleytunnar. Þeim hefur ekki einu sinni verið leiðbeint í því, hvernig þeir eigi að skrifa sjótjóns- skýrslur og verða oft að fá aðstoð til þess hjá einhverjum, sem máske aldrei hefur á sjó komið og ýmislegt mætti fleira nefna. Fiskimennirnir eiga hér enga sök. Enginn sinnir þeim og hve mikla löngun sem þeir hafa til að afla sér verk- legrar þekkingar, þá finna þeir hvarvetna lokaðar dyr. Fyrir fræðslu þeirra hefur ekkert verið hugsað og er ekki enn. Fé- lagsskapur bátaformanna í veiðistöðvun- um, gæti hrundið mörgu áleiðis, sem fiskimenn hefðu gott af að læra, skilja og vita, og merkilegt mætti það heita, ef ekkert áynnist með samtökum f þá átt, að sjómannastéttin fengi — viðbót við þá verklegu fræðslu, sem hún á kost á hér, þvi eftir hrósi því að dæma, sem stund- um er smellt inn í blaðagreinar á stangli, mætti svo ætla, að hún verðskuldaði ann- að, en að vera að öllu leyti sett hjá, hvað fræðslu áhrærir og á ýmsum svið- um gengið fram hjá henni, sem væri hún landinu óviðkomandi slétt. (UA 1934). Sveinbj. Egilson. Togarinn „Belgaum". Hinn 20. marz s. 1. lá við að ketill skipsins springi og mesta mildi, að því varð afstýrt. Ketillinn hafði, einhverra orsaka vegna, tæmst en eldur undir og ekki athugað fyr en um seinan. Belgaum lá innan um önnur skip og mundi stór- tjón hafa hlotist af, hefði ketillinn náð að springa. S. F. Stálsmiðjan hefur við- gerð með höndum og eráætlaðað henni verði lokið dagana 16.—17. apríl. Afla- tjón og vinnutap skipshafnar er mikið, þareð skipið hefur tafist frá veiðum heil- an mánuð, á aflamesta tíma vertíðarinnar.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.