Ægir

Volume

Ægir - 01.04.1934, Page 10

Ægir - 01.04.1934, Page 10
96 ÆGIR þar til greina, sem orsakar þvi. — Ægir vill ráða mönnum til að lesa þessa merku bók um leið og hann óskar bæði Hafnarfjarðarbæ og höfundi bók- arinnar til hamingju með verkið. Er vonandi, að fleiri bæir vorir, fari að dæmi Hafnarfjarðar og láti skrá sögu sína áð- ur en margt af því gamla, sem enn er varðveitt i minnum manna, er fallið í gleymsku og dá. Svbj. Egilson. Skýrsla frá fiskifulltrúanum á Spáni. Barcelona 20. febr. 1934. Avenida Victor Hugo, 4—5. Markaðurinn hér á Spáni hefur verið óvenjulega daufur i febrúar, og gengið því ver, sem lengra hefur liðið á mán- uðinn. Vita menn ekki hverju þetta sæt- ir. Nokkuð er þvi kennt um að veðrátt- an hefur verið óvenju hlý og gróðurþví þotið upp og nóg af grænmeti, þó aftur hafi kólnað síðustu tvo dagana og snjóað i nótt hér í Barcelona. Aðrir kenna þessa deyfð því, að hér séu óvanalega miklar birgðir fyrirliggjandi. Eru þær taldar vera um 4400 lestir og munu duga fram í júni þó ekkert bætist við. Reikni smá- salarnir þvi með verðfalli og dragi við sig kaup. í opinberri skýrslu um innflutninginn af saltfiski til Spánar síðastliðið ár, er út kom í fyrradag, sést, að innflutningurinn hefur verið hér um bil alveg sá sami og árið áður, 56.841 lestir árið 1933, en 56.777 árið 1932. Hefur Island helming- inn af öllum innflutningi eins og áður, 28.336 lestir, en 28.474 árið 1932. Af- gangurinn skiptist á sömu lönd og þá og nam sem hér segir fyrir hvert þeirra, en magnið fyrir 1932 er sett í svigum: Danmörk 10.001 lest (10.203), Frakkland 400 (373), Bretland 680 (633), Noregur 6.717 (7.072), Newfoundland 10.384 (9.936) en önnur lönd 259 lestir (150). 1 Ítalíu hækkaði verðið fram að miðj- um mánuði, en hefur fallið aftur síðustu dagana. Er því kennt um, að þar sé nokkuð af slæmum labra, er spilli sölu á öllum fiski, því enginn sé óhultur um, að verði seldur einhverjum keppinaut hans fyrir lítið verð, og muni þvístöðva sölu á öðrum fiski á meðan verið er að koma honum út. Aftur á móti er heldur gott hljóðið í Portúgalsmönnum. Raunar er lágt verð á fiski frá Newfoundlandi í Oporto og lítil eftirspurn eftir, nema smæsta og ó- dýrasta fiskinum þaðan, svo stærsti fisk- urinn, sem seldist fyrir360—420 escudos í desember, er nú kominn ofan í 280 escudos. 1 Lissabon er talin góð eftirspurn eftir íslenzkum fiski, sérstaklega siðan Norðmenn hækkuðu lágmarksverðið á sinum fiski. Ganga sögur um, að þeir hafi tapað töluverðu fé hjá innflytjend- um, sem ekki reyndust borgunarmenn fyrir skuldum sínum. Siðan Grikkir tóku að heimta full- komna vöruúttekt til greiðslu á innflutn- ingi þangað, hefur gríski markaðurinn verið lokaður fyrir okkur. Hafa Frakkar unnið markað þann, sem við höfum haft þar áður, og nam innflutningur þeirra í janúar 4.547 lestum. Gátu þá engir selt þangað aðrir, nema Rússar, er seldu þangað 32 lestir. í febrúar hafa Frakkar selt 500 lestir til Patras og er það í fyrsta skipti sem þeir hafa getað selt nokkuð á suður-gríska markaðinum, nú í lang- an tíma, því þar var hætt að seljastnokk- uð nema fiskur frá Labrador og íslandi. Auk þess hafa þeir selt 675 lestir af ó-

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.