Ægir - 01.04.1934, Qupperneq 21
ÆGÍR
107
Starf Rauða krossins
í Sandgerði.
_____ : L. j j 1 í
Hjúkrunarkona Rauða Krossins hefur
starfað í Sandgerði i vetur, eins og fyrir-
farandi 8 vétrarvertíðir. Þar eru nú gerðir
út rúmlega 30 mótorbátar. Ef landfólk
er talið með, er þarna saman komið
4—500 manns, sem lifir við ófullkomin
húsakynni og aðbúnað. Hjúkrunarkonan
hlynnir að þeim, sem veikjast — og
hjúkrar, eftir því sem ástæður leyfa.
Auk þess leitar á sjúkrastofuna fjöldi
sjómanna með handarmein og aðrar
ákomur.
Brýn þörf er á að koma upp sjúkra-
skýli og baðhúsi fyrir sjómenn, um
vetrarvertíðina. Rauði Krossinn hefur
áformað að beita séf fyrir þessu og látið
gera uppdrátt af húsinu. Fjársöf'nun er
þegar hafin. Sjómenn hafa lagt fram
nokkurt fé, en Miðneshreppur hefur
heitið styrk til skýlisins. Auk þess hafa
eigendur Sandgerðis heitið ókeypis lóð
undir húsið, sem Kauði Krossinn reynif
að koma upp hið fyrsta. Framkvæmda-
nefnd Rauða Krossins fór nýlega til
Sandgerðis í þessum erindum.
Auglýsing
um útflutning á fiski til Bretlands.
Vegna þess að margir úlflytjendur van-
rækje að útvega sér fyrirfram leyfitijút-
flutnings til Stóra-Bretlands á nýjum fiski
og óverkuðum saltfiski og vegna þess,
að brezk stjórnarvöld munu framvegis
krefjast þess, að slík leyfi séu komin þeim
i hendur áður en skip það, seni fiskinn
flytur. tekur brezka höfn.er það hérmeð
alvarlega brýnt fyrir þeim, sem hlut eiga
að máli, að framvegis fæst enginn nýr
fiskur né óverkaður saltfiskur fluttur úr
skipi, í brezkum höfnum, nema innflutn-
ingsleyfi sé fyrir hendi, þegar skip það,
sem flytur hann, hafnar sig. Til þess að
útflytjendur geti vænzt innflutningsleyf-
is i Bretlandi, verða þeir því að afhenda
atvinnu- og samgöngumálaráðuneytinu, í
síðasta lagi sólarhring áður en skip það,
sem fiskinn flytur út, leggur frá landi,
sundurliðaða skýrslu um fisk þann, sem
þeir óska að fá leyfi til að flytja út. Mun
þá ráðuneytið annast um, að innflutnings-
leyfi verði veitt í Bretlandi, en búast má
við, að leyfi verði aðeins veitt fyrir fisk-
tegundir, sem verðmætar eru til útflutn-
ings á brezkan markað.
Þeir sem ekki í tíma sækja um útflutn-
ingsleyfi, geta ekki búist við að fá það og
fá þá heldur ekki fiskinn fluttan inn í
Bretlandi.
Atvinnu- og samgöngum.ráðun. 3. apríl 1934.
Magnús Guðmundsson.
Vigfús Eincirsson.
Auglysing
um sölu saltsíldar til Finnlands.
Á tímabilinu frá 1. desember 1933 til
30. nóvember 1934 getum vér flutt til
Finnlands 32570 kg. saltsildar, eða um
325 síldartunnur, sem ekki yrði hærri
innflutningstollur á en 50 penni pr. kg.
eða V* hluti af gildandi síldartolli.
Samkvæmt þessu er hér með skorað
á þá síldarútflytjendur, sem hafa flutt út
síld undanfarin ár og kynnu að vilja
notfæra sér þessi hlunnindi, að sækja til
atvinnu- og samgöngumálaráðuneytisins
um útflutningsleyfi fyrir 1. ágúst 1934.
Atvinnu- og samgöngum.ráðun. 3. apríl 1934.
Magnús Guðmundsson.
Vigfús Einarsson.