Ægir

Årgang

Ægir - 01.10.1936, Side 12

Ægir - 01.10.1936, Side 12
238 Æ G I R Fast kaup stúlknanna er 15 shillings á viku (kr. 16,58 ísl.), en nú fóru suni- ar að stinga upp á þvi, að það yrði liækk- að upp í 17 shillings og 6 pence, en sú uppástunga fé.kk litinn byr. Sunnudaginn 25. októher var auglýst frá slól, í öllum kirkjum og samkundu- húsum, sem stúlkurnar sækja, í Yar- moulh og Lowestoft, að þær hyrjuðu vinnu morguninn 26., og að síldarmála- nefnd áliyrgðist, að þeim væri greill 1 shilling fyrir hverja ápakkaða tunnu af síld. (Scotsman 26. okt. 1936.) Enn um fjörug’rös. í nóvemberhefti Ægis síðastliðið ár, ritaði Dr. Bjarni Sæmundsson grein um fjörugrös og hirðingu á þeim, í lilefni af fyrirspurnum, scm borist höfðu frá út- löndum. Síðan hafa ýmsir snúið sér til Fiskifélagsins, ýmist með sýnishorn, sem Jieir hafa lekið, eða til þess að leila upp- lýsinga. Sýnishornin hafa verið send til Englands, til þeirra, sem gerl höfðu fyr- irspurnina, en ])að er verksmiðja í Man- chester. Því miður hafa þau ekki líkað, og hefur verið skrifað hingað, að þetta sem sent var, væru alls ekki fjörugrös. (Chondrus crispus). Þetta er J)ó skakkt hjá bréfrilendum, J)að eru fjörugrös og engir aðrir þörungar, sem héðan hafa farið. Um þetta getum við Dr. Bjarni báðir borið vilni. Ennfremur hefur mag. Ingólfur Davíðsson, sem er sérfræðingur á þessu sviði (í grasafræði), gerl mér þann greiða, að athuga þessar sending- ar, sem aftur eru komnar liingað, og hann heíur komist að sömu niðurstöðu og við Bjarni. Loks hafa fjörugrös, sem út hafa verið send, verið borin saman við fjörugrös, sem lil eru á náttúrugripa- safninu, og Dr. Helgi Jónsson hefursafn- að, einnig með þessum samanburði hef- ur fengist sönnun fyrir J)ví, að um fjöru- grös, en enga aðra þörunga var að ræða. Er því bersýnilegt, að J)eir, sem hafa gert fyrirspurn um fjörugrös, þekkja þau ekki nema þurkuð, og vita því miður ekki, hvernig á að fara að þurka þau, svo að liturinn fari úr þeim. Það sem aðallega her á milli írsku og íslenzku fjörugrasanna þurkaðra, er lit- urinn. írsku fjörugrösin eru livít, litur- inn er horfinn úr þeim, en íslenzku fjörugrösin halda lilnum. Þórður Þor- björnsson, fiskiðnfræðingur, gerði efna- fræðislegar tilraunir, bæði með írsk og íslenzk fjörgrös, til þess að revna að finna mun á þeim, og aðalmunurinn, sem kom i l jós, var fólginn í því, að úr þeim íslenzku fékkst lítið eitt minna og ekki eins fast hlaup, og auk þess var sjávarlykt af þeim, en ekki af hinum. Það sem hér ber á milli, er auðsjáan- lega verkunin. Sennilegt er að Irar, sem nú senda þessi grös á enska markaðinn, láli rigna úr þeim litinn og seltuna, en hvort J)eir kunna önnur ráð til })ess að gera verðmæta vöru úr fjörugrösunum, skal látið ósagt. Hitt er víst, að Bretar, sem vilja fá vöruna, gela ekki gefið full- nægjandi upplýsingar um verkun henn- ar, á því »leyndarmáli« liggja írar. Æskilegt væri að menn gerðu tilraun- ir með fjörugrös, svo að séð yrði hvort ekki mætti ná úr þeim sellu og lit með einhverjum aðferðum, t. d. með því, nð láta þau liggja lengi úti, og rigna á þau, eða á einhvern annan hátt. Ef lil vill myndu efnafræðingar geta gefið einhverj- ar upplýsingar, ef til þeirra væri leitað. í útvarpserindi um fjörugrös, sem eg llulti siðast liðinn vetur, og í grein, sem ég ritaði í Náttúrufræðinginn. 1. hefti 1936, benti ég á að nauðsyn bæri Lil

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.