Ægir - 01.10.1936, Qupperneq 20
246
Æ G I R
26. júní fengust 40 þorskar og 1 lúða
(9 kg) á 600 öngla haukalóð, 96—113
faðma dýpi (62° 30' N 40° 47' V), og var
beitt (eins og vanalega) frystri síld og
nýjum fiski.
28. júní fengust 15 þorskar, 11 keilur
og 11 lúður (225 kg) á 550 öngla hauka-
línu, dýpi 205—213 faðmar (62° 20' N
42° 35' V).
29. og 30. júní var lögð 1800 öngla
haukalóð í þremur bútum (62° 06' N 41°
00' V). Dýpi var 79—246 láðmar. Veiðin
varð 126 þorskar og 24 lúður (246 kg),
auk þess, sem veiddist af verðlitlum teg-
undum (keilu, steinl)ít, blágómu, blira,
karfa o. s. frv.).
2. júlí veiddust 4 lúður (66 kg), 72
keilur og 24 þorskar á 600 öngla hauka-
lóð (63° 28' N 38° 38' V). Dýpi 131—485
faðmar.
3. júlí veiddust 39 keilur, 8 þorskar
og 11 lúður (125 kg) á 600 öngla hauka-
lóð (63° 35' N 37° 19' V). Dýpi 134—192
faðmar.
5. júlí var lögð haukalína í fjórum
bútum (2675 önglar), (64° 28' N 35° 51' V)
á 152—198 faðma dýpi. Á þetla fengust
26 lúður (466 kg), 89 þorskar, 176 keil-
ur og 1 grálúða. Þarna var fiskur bilinn
af hákarli.
6. júlí fengust 37 þorskar 12 keilur og
1 lúða (67 kg) á 800 öngla hankalínu
(64° 45' N 35° 40' V). Dýpi 148—171 faðm.
12. júlí veiddust 3 lúður (100 kg)
og 1 þorskur á 600 öngla haukalóð á
216—240 faðma dýpi (64° 56' N 35°
00' V).
Dagana 14.—16. júlí var lögð 2600
öngla haukalóð í fjórum bútum (65° 41'
N 28° 58' V — 65° 39' N 29° 02' V) á 193—
226 faðma dýpi. Á þelta veiddist sem hér
segir: 55 lúður (2558 kg), 352 þorskar
og auk þess varð grálúðu vart.
19. júlí veiddust 2 lúður (61 kg) og 44
þorskar á 300 öngla haukalóð (65° 58' N
28° 58' V). Dýpi 192—197 faðmar.
Fyr sama dag höfðu fengist 3 lúður
(116 kg) 8 grálúður og 15 þorskar (65°
52' N 28° 43' V).
20. júlí lengust 3 lúður (226 kg) 1 grá-
lúða og 15 þorskar á 600 öngla hauka-
linu (66° 20' N 27° 40' V). Dýpi 219—240
faðmar.
22. júlí fengust 3 keilur, 21 grálúða
(68—80 cm) og 1 hákarl á 150 öngla
haukalóð (66° 32' N 25° 15' V), dýpi 214
—218 láðmar.
7. ágúst fengust 6 lúður (58 kg), 13
þorskar og 99 keilur á 600 hauka (60°
38' N 41° 56' V), dýpi 126—140 faðmar.
9. ágúst fengust 40 lúður (254 kg), 28
þorskar, 86 keilur og ýmislegt af öðrum
fiski á 1200 hauka (62° 06' N 40° 21' V),
á 90—252 metra dýpi.
10. ágúst veiddust 10 lúður (71 kg),
26 þorskar og nokkuð af öðrum fiski
(62° 27' N 39° 52' V), á 109—138 faðma
dýpi.
Hér hafa verið taldar helztu stöðvarn-
ar, þar sem fiskitilraunir voru gerðar
með sæmilegum árangri. Ef við litum á
sjókort af þessu svæði, sjáum við að
sumir þeirra staða, þar sem veiði var
bezt, er skammt héðan undan Vestfjörð-
um og Breiðaflóa. Sumstaðar liafa verið
slík uppgríp af lúðu og þorski, að dæma-
fátt má teljast. Líklegt er að lúða sé
þarna að staðaldri, en um þorskinn mun
allt vera vafasamara. Eins og kunnugt
er, liafa verið mikil l)rögð að þorskgöng-
um milii íslands og Grænlands á síðari
árum, og þarna hefur leiðin legið eins
og ég hefi bent á annars staðar.
Grænlandshafið er svæði, sem íslenzk-
ir fiskimenn eiga eftir að leggja undir
sig. Og hvers vegna hafa þeir ekki þeg-
ar gert það? Veiðiskilyrði eru þar nokk-
uð önnur én hér á landgrynninu, dýpi