Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1951, Síða 7

Ægir - 01.04.1951, Síða 7
Æ G I R Skal nú ekki fjölyrt um ferðina með Gullfaxa að öðru en því, að allt gekk að uskuni og nákvæmlega samkvæmt því, sem Ulkynnt var. Við lögðum af stað í þykk- viðri á vellium, en er við höfðum flogið ca. 10—20 mín., var komið upp í glaða sólskin, sem hélzt alla leiðina. Kl. 12 var Ulkynnt, að við værum í 9000 feta hæð, úti væri 2 stiga frost og hraðinn væri 350 kni. Var svo lent á flugvellinum í Prestvick u nákvæmlega tiltekinni mínútu. Þar voru farþegarnir, sem áfram héldu með vélinni, látnir fara inn í afgirtan skála, og fannst °kkur, að óhætt hefði verið að lofa okkur að skoða okkur dálítið um á meðan stanz- nð var, sem ekki var nema um eina klukku- stund, en þetta er sjálfsagt nauðsynlegt yegna þess að þarna fór ekki fram nein vegabréfaskoðun hjá þeim, sem áfram héldu ferðinni með Gullfaxa. Veðrið var lJarna ágætt, sólskin og hlýindi, græn jörð pg nautgripir á beit rétt hjá flugbraut- ln“i- Fannst manni þetta ótrúlegur munur eða heima, eftir ekki lengra ferðalag. Var svo lagt af stað aftur, tilkynnt að flogið ycði í 7500 feta hæð og við yrðurn 3% t'nia á leiðinni til Kaupmannahafnar. Kl. 15, enskur tími, kom flugfreyjan með mat á bakka handa hverjum manni, var það hverskyns góðgæti, svo sem steikt svínakjöt, grænmeti alls konar, brauð og kex með osti, epli, mjólk og kaffi og svo Htil formkaka sem eftirmatur, allt sér- |ega lystugur og góður matur, enda flest- lr orðnir matlystugir eftir að hafa ekki horðað frá því heima á íslandi, nema sukkulaði og eitthvert annað sælgæti, sem °kkur var áður borið á leiðinni, en þess verður að geta þó að leiðin væri orðin æði löng, þá var allgeyst farið, því að fák- urinn var knúinn 5600 hestöflum gegnum geyminn. Einhvern tima hefði svona ferða- lag verið kallað gandreið. En svona er nú- tíminn með allri sinni tækni og kunnáttu. Lentum við svo á tiltekinni mín. á Kastrup- Ilugvelli við Kaupmannahöfn. Er þar stærð- 83 ar flughöfn, að manni sýndist, en dimmt var orðið og allt uppljómað úti og inni. Þarna var allt fullt af fólki á ferðalagi sínu um víða veröld, vafalaust hefðum við kosið að stanza í Kaupmanahöfn, en þess var ekki kostur, þar sem eftir stund- arbið varð flugferð til Oslo. Kl. 20.00, danskur tími, vorum við komnir upp í flugvél frá S. A. S. félaginu, var það svo nefnd Skandiavél, álíka og Dakotavélarnar heima. Áður en lagt var af stað, kom flug- freyjan til okkar og spurði, hvort við hefð- um flogið með þessum flugvélum fyrr. Hún sagði, að við skyldum ekki láta okkur bregða, þótt við sæjum loga frá mótorun- um, er við kæmum á loft, það væri allt í lagi fyrir því. Nokkrum mínútum eftir þetta hófst flugið. Kom þá i ljós, að það stóð blár loginn aftur úr vélinni, var það frá útblásturspípum mótoranna. Kl. 21.05 var tilkynnt, að við værum í 2000 metra hæð og hraðinn væri 315 km. Sama um- önnun var farþegum sýnd þarna og við höfðum haft í Gullfaxa, einstök lipurð og kurteisi áhafnarinnar, að ógleymdu brosi flugfreyjunnar. Einhverjar góðgerðir voru okkur bornar og blöð til að lesa, sem allt fylgdi með án sérstaks gjalds. Enga hvim- leiða drykkjupeninga varð maður var við, sem enn þá ber allmikið á, er maður ferð- ast með öðrum farartækjum. Mér virðist flugfélögin vera til fyrirmyndar með alla aðhlynningu og fyrirgreiðslu við farþega. Eftir tveggja stunda flug var svo lent á Fornebuflugvelli við Oslo. Eftir vega- bréfa- og tollskoðun var farið með stórri bifreið til borgarinnar. Komum við á Hótel Ritz og pensionat kl. 23.30 og var ferðinni yfir hafið þar með lokið. 28. febrúar. 1 Oslo: Við Einar urðum herbergisfélagar. Var herbergi okkar á 4. hæð. Lyfta var til þess að fara í upp og niður. Rólegt er í gisti- húsi þessu og búnaður allur mjög sæmi- legur. Það mun vera nokkuð gamalt, en

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.