Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1951, Síða 10

Ægir - 01.04.1951, Síða 10
r 86 M G I ft Norður-ísland til þess að síldin finndi þar þau skilyrði, sem henni henta, væri hennar væntanlega að leita langt norð- austur af íslandi næstu ár. Mundi þurfa að sækja hana allt til Jan Mayen yfir sumar- tímann næstu árin, en þar hefði hún ver- ið að undanförnu og þar mundi hún verða næstu 5 ár. Enda þótt ég setji þetta hér, þá vil ég taka það fram, að þetta var að- eins látið í ljós í venjulegum samræðum um horfurnar, en ekki sem vísindaleg stað- hæfing. Þetta mun þó alláberandi skoðun Norðmanna nú sem stendur um síldveið- arnar við ísland. Eftir að við höfðum dval- ið þarna alllengi og orðið margs vísari um þessa merkilegu stofnun, sem þó hefði þurft miklu lengri tima til að slcoða, var farið að hugsa til næsta áfanga, sem var stór síldarverksmiðja þarna í nágrenni borgarinnar. Kl. 13 var farið á bát frá höfninni út í eyju, sem heitir Horsöy, til þess að skoða þar síldarverksmiðju, sem þar var í full- um gangi. Verksmiðju þessa, sem ekld er gömul, eiga fiskimennirnir sjálfir, og er hún ein af þrem, sem byggð hefur verið þannig félagslega upp. Heitir þessi stofn- un „Sildefiskerens sildolie fabrik Horsoy“. Afköst hennar eru 15000 hektólítrar á sólarhring, og er þróarpláss fyrir 150000 hl. Skilvindur eru 6, en löndunarkranar eru 15. Við verksmiðjuna vinna 286 menn þrí- skiptar vaktir, en allt mjölið er látið í pappírspoka 50 kg. Var okkur sagt, að pok- inn kostaði innan við eina krónu stk. En fyrir vissa markaði verða þeir einnig að nota strigapoka, sem eru margfalt dýrari. Eftir því sem næst varð komist, mun ekki vera að sjá hjá Norðmönnum fulkomnari sildarverksmiðjur heldur en það, sem nýj- ast og fullkomnast er hér á landi. En allt virtist manni þetta vera með myndarbrag, og aðstaða frá náttúrunnar hendi hin á- lcjósanlegasta. Á þessari leið og út úr höfninni naut maður hins fegursta útsýnis, því að veðr- ið var gott, sólskin og bjart. Um kvöldið vorum við svo í boði hjá fiskimálastjór- anum, Klaus Sunnaná, sem þá bauð ís- lendingana hjartanlega velkomna til Noregs i ræðu, er hann flutti undir borðum. Voru þarna einnig staddir nokkrir menn úr borginni og margar ræður fluttar af mikilli velvild til íslands. Var setið þar nokkuð fram eftir kvöldi eða þar til við skyldum búast til ferðar með strandferðaskipi, sem „Kong Sverre“ heitir, og átti að fara til Haugasunds um nóttina. • / Haugasundi: K. 5 næsta morgun komum við svo til Haugasunds. Var þá 2. marz. Þar á bryggj- unni var Lars Bakkevilc til þess að taka á móti okkur. Hann fylgdi okkur á gisti- húsið, sem okkur hafði verið búin gist- ing á, meðan dvalizt var þar. Var það hótel Ivong Harald, sem er rétt fyrir ofan bryg'gjuna, er skipið lagðist að. Föður- bróðir þessa Bakkeviks hafði verið mörg ár á íslandi, aðallega Siglufirði og er mörg- um íslendingum kunnur. Sýndi þessi mað- ur okkur sérstaka vinsemd og höfðing- skap, sem síðar verður að vikið. Tóku menn nú á sig náðir fram á morguninn til kl. 8, að menn fóru að litast um. Gengum við herbergisfélagarnir út sam- an. Það fyrsta, sem mætti augum, var höfnin. Hún er sund á milli lands og eyjar, sem bærinn stendur einnig á. Hefur ver- ið byggð geysistór brú yfir sundið, er það mikið mannvirki, steinsteyptur bogi, eftir ágizkun minni ca. 150 metra eða meira langt haf og 20—30 rnetra hátt yfir sjó. Sigla stærðar skip þar undir. Aðdýpið við höfnina er svo mikið, að svo að segja engar bryggjur þarf. Skipin leggjast að sjálfum húsunum, enda sáust varla vörubílar við höfnina. Til marks um þetta vil ég geta atviks, sem kom þarna fyrir á meðan við vorurn þarna. Lesa mátti í blaði, að það sýndi sig, að það væri lífshættulegt að búa i húsum þarna við höfnina. Það liafði sem

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.