Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.04.1951, Qupperneq 12

Ægir - 01.04.1951, Qupperneq 12
88 Æ G I R sem heitir Karmöy. Er keyrt æði spöl út úr bænum, en þar liggur vegurinn að sund- inu og er þar bílferja, sem flytur stærstu bíla yfir í eyjuna. Var þar mikil umferð, stöðugur bifreiðastraumur fram og aftur. Okkur var sagt, að fyrirhugað væri að byggja þarna stórbrú yfir sundið. Það fyrsta, sem okkur var sýnt þennan dag, var tunnuverksmiðja i fullum gangi. Virt- ist allt ganga þar með fullkomnum verk- smiðjuhraða, vélar til hvers og eins við tunnusmíðina, efnið flutt frá timburverk- smiðjunum að mestu i hæfilegum stærðum, samanbúntað, og mátti sjá þar stóra timbur- hlaða og svo eiUnig mikið af tilbúnum tunnum. Er þessu lauk, var haldið áfram ferð- inni eftir Karmeynni. Fyrsti viðkomustað- ur var Sevlandsvik, sem er allmikill út- gerðarstaður. Þar tóku á móti okkur Lars Tvedt útgerðarmaður, og Guvert Grind- hauge, sem slógust í förina. Þaðan var ekið lengra suður eftir og var Ákrahamn næsti viðkomustaður, en það er allmikill útgerðarbær. Þarna voru hafnargarðar gerðir úr stórgrýti og virtist vera hlaðið í sund á milli eyja. Liggur þetta allt nærri hafi, en samt er þarna góð höfn og mikið af skipum. Vel sást þaðan út á síldarmið- in, þar sem netjabátar voru að veiðum skammt undan. í Ákrahamn bættust nokkr- ir menn til fylgdar við okltur, tóku sér tíma frá störfum til þess að vera með okk- ur þessa dagstund. Lars Tvedt bauð okk- ur þarna til morgunverðar á heimili, og var okkur veitt af mestu rausn og mynd- arskap. Ivynntum við okkur þarna síldar- net þau, er þeir nota við veiðarnar, og kalla botnnet. Voru netin úr grófara garni heldur en venjuleg reknet, 4—5 faðma djúp, 10—12 faðma löng'. Eru þau lögð við botn mjög líkt og venjuleg þorskanet, og' eru allt að 30—40 net í trossu. Möskva- stærð er 19 pr. al. Var góður afli í botn- netin. Það, sem vakti nokkra athygli okk- ar þarna, voru m. a. humargildrur, er lágu þarna á hafnargarðinum til þerris. Eru þetta dálitlir sívalningar úr neti, en gjarðir, sem halda netinu sundur. Gildr- ur þessar eru á að gizka 60 cm langar og 40 cm í þvermál, og verða eins og dunkur í lögun. Á miðjunni er ferhyrnt op með loku, sem er höfð opin, þegar þessu er sökkt niður til veiða. Beita er svo látin innan í líkast því, sem verið sé að beita rottugildru. Þegar svo humarinn fer inn og' fer að eiga við agnið, lokast gildran. Ekki mun mikill tilkostnaður við þetta veiðarfæri og veiðin sennilega höfð í hjá- verkum. En humarinn er verðmætur og þyltir mesta lostæti, svo sem kunnugt er. Þegar staðið hafði verið við þarna í 2 tíma, var haldið lengra suður eftir eynni, þar til komið var til Skudeneshavn, sem er álíka stór útgerðarstaður og hinir, sem við höfðum komið í, syðst á Karmöy. Þar tóku á móti okkur Olav M. Wikre og Hans Gilje, sem buðu okkur velkomna og byrj- uðu þegar að sýna okkur staðinn og höfn- ina, sem er, eins og annars staðar, ágæt, liggur að heita má fast við síldarmiðin. Hið fyrsta, er okkur var sýnt, var 50 ára gamall trjágarður, sem kvenfélag staðar- ins liafði ræktað. Er hann á allháum klettahöfða, sem liggur fast að sjónum og höfninni. Er þar mjög gott útsýni til hafs- ins og einnig yfir höfnina og bæinn. Þarna gat að líta stærðar skógartré og vel skipu- lagðan skrúðgarð. Annars ber ekki mikið á skógi á eyjunni eða úti við sjóinn. í fallegum hvammi þarna í garðinum hefur verið reist minnismerki yfir drukknaða sjómenn. Þessu næst var haldið á sjóinn. Fórum við út á síldarmiðin á eftirlitsbát, sem Sjövern heitir. Við vorum ekki rétt vel heppnir með veðrið. Á var suðlægur strekk- ings vindur og herpinótaskipin því ekki að veiðum, en lágu við stjóra. Keyrðum við alllcngi um veiðisvæðið og sáum netja- bátana við netjadráttinn, en Htil virtist okkur veiðin, það er við sáum, en veruleg veiði varð samt í netin þennan dag. Þess ber að gæta, að skipin eru mörg, sem

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.