Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1951, Blaðsíða 14

Ægir - 01.04.1951, Blaðsíða 14
90 Æ G I R Ferðafélagarnir og fglgdarmenn þeirra uppi á þaki á fiskiðjuveri í Alasundi. inn í fjallið, er þar venjulcg miðasala fyrir farþegana. Var þarna fult af fólki, sein var að ferðast upp og niður, einkum af skíðafólki, því að þar uppi mun vera gott land til skíðaiðkunar að vetrinum. Um kvöldið borðuðum við saman allir ferða- félagarnir. Kl. 22 var svo farið um borð í strandferðaskip, sem „Atla“ heitir, skyld- um við fara með því norður tii Álasunds. Skip þetta er ekki stórt, 688 lestir br., nýlegt og snoturt með mjög sæmilegri að- búð fyrir farþega, snyrtilegt og vel um gengið. Ganggott er það, enda ferðin löng, sem því er ætluð, leiðin öll norður til nyrztu hafnar Noregs, Kirkenes. Var þetta byrjun á hinni löngu ferð okkar norður til Lófót. 5. marz. Þá er maður kom upp til að litast um, lá leiðin inan skerja um eyjar og sund og aftur um eyjar og sund, sem ekki virtist hafa neinn enda. Þarna með ströndinni, á eyjunum, er þéttbýlt að sjá og alls stað- ar þessar óviðjafnanlegu hafnir, hvar sem komið var að landi. Allvíða voru stuttar viðkomur. Um morguninn var koinið i Málöy. Er það talsverður bær með síldar- verksmiðju, og var þar mikil skipaumferð. Álasund: Kl. 13.15 komum við svo til Álasunds. Á bryggjunni þar tóku á móti okkur Oscar Larsen, ræðismaður íslendinga í Álasundi, og Jangárd, forstjóri í Statens Fryseanlegg og Kjölelager, og buðu okkur velkomna og fylgdu okkur á gistihús það, er við skyld- um búa á, meðan dvalið var þar. Heitir það „Grand Hotel“, sem víða annars staðar í Noregi. Var þar snæddur miðdegisverður, en að því loknu kom íslenzki konsúllinn, Oscar Larsen, þar á staðnum með 3 bíla, sem okkur var ekið í um bæinn og upp á fjall það, er Öxlin heitir, og bær- inn stendur við, og svo einnig í fjalls- hliðunum. Var ekið eftir góðum vegi, sem liggur í sneiðingum upp fjalls- hlíðina skógivaxna, mest var það barr- skógur, sígrænn og fagur. Af Öxlinni er eitthvert hið fegursta útsýni yfir eyjar, sund og firði nágrennisins. Er fjall þetta 166 metra hátt skógi vaxið upp á efstu brúnir. Okkur var sagt, að þeir væru að undirbúa svipaða braut þarna upp á fjall- ið eins og er upp á Flöjen í Bergen. Mun það ekki sízt vera gert vegna ferðamanna. Þarna upp á Öxlinni gat að lita stór og rammbyggð fallbyssuvirki, sem notuð höfðu verið í styx-jöldinni síðustu. Öll voru þau steinsteypt og varanleg, að því er virtist. Með fram veginum þarna upp fjall- ið gat að líta allmikið af húsum, sem þeir kalla þar „þýzku húsin“. Eru það löng einnar hæðar timburhús með steyptum kjallara, sem þýzki herinn hafði byggt yfir menn sína. Nú eru þetta ibúðarhús og sýnast vera varanleg. Þarna í Álasundi sáust nokkur merki eyðileggingar striðs- áranna. Sáum við nokkur steinhús, sem liöfðu orðið fyrir sprengjum, en var nú farið að byggja upp og jafnvel nota neðstu hæðina til verlunarreksturs og þess hátt- ar. Svo sem kunnugt er, varð árið 1904 einn af stórbrunum Noregs, þegar bær- inn brann svo að segja allur í einu vett- fangi. Meira en 800 hús brunnu og 10 000 manns urðu húsnæðislausir. Bærinn byggð- ist aftur, en þá úr steini, sem áður hafði verið úr timbri. Er aftur kom niður í bæinn, var okkur ekið út fyrir hann, að

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.