Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1951, Síða 16

Ægir - 01.04.1951, Síða 16
92 Æ G I R il fiskgeymsluhús. Var þar geymdur þurrk- aður saltfiskur, sem Norðmenn kalla „klipfisk“. Kemur nafnið til af því, að fiskurinn er þurrkaður úti á klöppum, sem mikið er af þarna út við sjóinn á vestur- ströndinni. Er saltfiskurinn látinn í verkun til ein- stakra manna víðsvegar, en svo safnað saman þarna til geymslu, mats og pökkun- ar til útflutnings. Sáum við þarna þurr- fisk frá í fyrra, leit hann vel út, hreinn og litargóður. Kom þarna vel í ljós, að Norðmenn munu hafa bætt saltfiskverk- un sína á sama tíina og' henni hefur farið aftur á íslandi. Þetta megum við íslendingar vita, og taka til alvarlegrar athugunar, ef við vilj- uin halda velli á markaðinum. Þetta var geysistórt hús og vel útbúið til fiskgeymslu. Með kæliútbúnaði var loftinu alltaf hald- ið 2 stiga heitu. Þannig er það hæfilega þurrt en saggalaust. Þetta var í timburhúsi og var þar allt hreint og vel um gengið. Rétt er að taka það fram, að lagið á norska saltfisknum er ekki eins fallegt eins og á okkar saltfiski, og kemur það til af flatningunni, sem er verulega frábrugðin þeirri íslenzku, svo sem kunnugt er. Þetta sama fyrirtæki hefur einnig íshús til beitufrystingar. Virðist það hafa ráð á geysimiklu frosti eða allt að 30 stigum, ef svo ber undir, og sýnir það, að húsin eru góð. Beitusíldin norska er okkur íslending- um kunn og ekki að góðu. Frysta þeir sildina í pækli eða svo var okkur sagt þarna, eftir að hún hefur verið þvegin í þvottavél. Sumt af síldinni frysta þeir í kössum og þurfa þeir til þess mikið frost. Geymslurúm var þarna fyrir um 2500 smál. af sild. í sainbandi við þessa síldarfrystingu er unnið úr síldarhreistrinu, sem kemur úr þvottavélinni, efni það, er gefur síldinni silfurlitinn. Var okkur sýnt að nokkru, hvernig það fer fram. Sýndist ekki þurfa miklar vélar til þeirrar framleiðslu. Eru það einhverjir suðupottar, sem hreistrið er látið i, ef til vill með einhverjuin efna- blöndum, þar losnar litarefnið af hornþynn' unni, sem síðan er ekki neitt notuð. Efn- ið kemur svo svo sem silfurlitað niauk allþykkt. (Líkt og silfurbrons.) Úr þessn mauki eru svo gerðar perlur. Selja þe'1 efni þetta aðallega til Ameríku. Sjálfn sögðust þeir ekki enn þá vera farnir að framleiða perlurnar, en unnið væri að til- raunum með það þarna, en ekki náðsl verulegur árangur í því efni. Síldarhreistrið sögðu þeir að þyrfti að vera af nýrri síld, úr mjög blóðugu hreistri næðist ekki nema laklegt efni, það væri bú- ið að missa glansinn og enn hefði ekki tekizt að hreinsa það nægilega, bezt væn hreistur af smásíldinni (brisling). Kl. 13, þennan dag, bauð íslenzki konsúll- inn þarna, Oscar Larsen, okkur til niiS- degisverðar á heimili sínu. Sátu þar til borðs með okkur faðir hans og bróðir og svo hjónin. Var þetta sérlega alúðlegt og gestrisið fólk og góðgerðir rausnarlegar- Hafði þetta fólk sérstakan áhuga fyrir Þvk að okkur liði sem bezt, og hefðum senl mest gagn af ferðinni. Blakti íslenzki fán- inn á stöng fyrir utan. Er við höfðum setið æði stund á heimiji konsúlshjónanna, var farið að hugsa til ferðar. Næsti áfangi var Kristjansund, nie® viðkomu í Molde. Þangað komum við með skipi kl. 18 og þar l'arið í bíl samstundis til staðar, sem heitir Gjemnes, og þaðan á ferju til Kristjansund. Telcur þessi feið frá Álasundi í kring um 6 klukkustundii. í Molde skildi ég við félagana um stund. og dvaldi þar nóttina hjá föðursystur ininni. Guðrúnu, sem þar á lieima. Átti ég ÞaI skennntilega stund á heimili Guðrúnar og manns hennar, Jóhann Barstein, og sym þeirra lijóna, Karli að nafni. Molde varð sem kunnugt er fyrir niik" illi eyðileggingu af völdurn stríðsins, en nu er mikið búið að lagfæra og byggja UPP að nýju breiðar götur og smekklegar all- stórar byggingar. Er þetta annálað byggð arlag fyrir sérstaka fegurð og hvernig þa É

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.