Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1951, Blaðsíða 22

Ægir - 01.04.1951, Blaðsíða 22
98 Æ G I R Þennan sama dag, kl. 10.30, fórum við allir með eftirlitsbát, sem „Signal“ heitir, lit á miðin. Veður var allgott, slétt í sjóinn, snjóél og dimmt með köflum. Er við höfð- um keyrt nokkuð suður með eyjunum, var haldið frá landi. Þá birti upp og blasti þá fiskiflotinn við, ótölulegur fjöldi fiski- skipa og báta, sem voru þarna að veiðum, en flestir álíka langt undan og með fram eyjaklasanum, eins og þarna sé aðeins fisk að fá á afmörkuðu svæði. Athygli okkar Jjeindist fyrst og fremst að herpinótaveið- unum, sem nú voru þarna í fullum gangi. Hinar veiðiaðferðirnar þekkjum við, svo það vakti ekki neina forvitni hjá okkur, nema þá hvað skipin og bátarnir voru þétt. Það mundi vilja verða þvarg á mið- ununi við Island, ef bátar væru svo nærri hver öðrum með veiðarfærin. Fórum við svo inn i skipaþvöguna og fylgdumst með, hvernig þeir liöguðu sér við nótaveiðina, en því verður lýst af öðrum. Núna stund- uðu 700 bátar netjaveiðar, 500 með línu, 2500 með færi og 475 með nót, eða alls 4175 skip og bátar með 20 000 manna á- höfn. Af þessu geta menn séð, að í Lófót muni vera æði mikið um að vera á vetrarver- tiðinni, sem stendur frá því í jan.—febr. og fram undir maí ár hvert. Leyfi yfirvaldanna þarf til þess að stunda hrepinótaveiðarnar. Á þessu ári sótlu eitt þúsund um nótaveiðileyfi, en 600 voru veitt. Eru það einkum reyndir skipstjórar sem ganga fyrir að fá leyfin. Heyrst hefur, að á næsta ári muni nótaveiðin verða gefin frjáls. Yfirleitt mun eftirlit með veiðunum vera þarna allstrangt. Eru 50 af fiskiskip- unum með lögregluvaldi til aðstoðar við gæzluna. Róðrartíma hafa þeir þannig, að ekkert skip eða bátur má vera úti á mið- unum frá því kl. 19 að kvöldi til kl. 7 að morgni. Enginn bátur má láta úr liöfn fyrr en kl. 6 að morgni, elcki kasta nót fyrr en kl. 10 og ekki eftir kl. 15, en Ijúka mega þeir við kast, sem byrjað er á fyrir þann tíma, en hafa lokið öllu fyrir kl. 17. Línu- og netjabátar leggja á kvöldin, °S allir færab;'i,tarnir verða að vera hsettn veiðum kl. 18, svo er algerð kyrrð á inið' unum yfir nóttina. Eftir 5 tíma ferðalaS um miðin komum við úr þeirri för. Er 1 land kom, eftir að við höfðum fengið okk- ur hressingu eftir sjóferðina, fóruni við enn á söltunarstöðvar. Var nú fiskurinn kominn og sást þá öll vinnan í fulhun gangi. Er ekkert frekar um það að segja> annað en að alls staðar virtist vera lög® mikil áherzla á hreinlæti og góða með- ferð fisksins. Ekki salta þeir í pækil heldui aðeins í stafla eins og við þekkjum, Þal sem ekki eru pækilkör. 11. marz, simnudagiir. Kl. 10 um morguninn var okkur boðið um borð í hið nýja rannsóknarskip ,fi- Sars“, sem var nú þarna í Svolvær. Vai þar fyrir fiskimálastjórinn, Sunnaná, ásamt fleirum. Gunnar Rollefsen, fiskifræðingur, sýndi okkur skipið og skýrði fyrir okkur alla starfsemi, er þar fer fram, allt fra hvers konar veiðum, sem skipið stundar jafnhliða rannsóknunum og hin margvís* legu rannsóknartælci, sem þar eru innan- borðs, rannsóknarstofur og allt er að fiski- og hafrannsóknum lýtur, þar á meðal hið undraverða „Asdic“-tæki, sem er eitt það þýðingarmesta til síldarleitar, sem enn er upp fundið. Slcal hér ekki gerð tilraun til þess að lýsa nema að litlu leyti þessutn hlutum, til þess þarf í raun og veru sér- fræðinga, en öllu virtist þarna fyrir kontið af hinni mestu nákvæmni vísindantannsins, enda var okkur sagt, að það ltefði verið mestur vandinn er skip þetta var útbúið, að koina öllu sem bezt og haganlegast fyrir. Okkur var sýnt á hvern hátt þeir sækja sjóprufur á mikið dýpi og svo rann- sóknarstofurnar með öllum sínuin búnaði. í smásjá fenguin við að skoða 4 vikna görnul þorskegg og þverbrotnar þorskkvarn- ir, sem notaðar eru við aldursákvarðanir fisltsins, og annað, sent okkur þótti undra- vert, en liöfðum vitanlega sérstakan áhuga

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.