Ægir - 01.04.1951, Síða 31
Æ G I R
107
Endurheimtur á þorski mcrktum á Önundarfirði 12. sept.
og Arnarfirði 13. sept. 1'JíO.
að sinni. Mun
verða birt um
þær ýtarleg
skýrsla í ritum
Fiskideildar eftir
hæfilegan tima,
og einnig mun
lesendum Ægis
verða skýrt frá á-
rangrinum.
Árið 1950 var
einnig merktur
þorskur fyrir
Austur-, Norður-
og Vesturlandi,
og mun vonandi
verða hægt að
halda þessum
merkingum á-
fram á næstu ár-
um og þá kapp-
kostað að merkja
fisk sem víðast á
öllu landgrunn-
inu, en af ýmsum
orsökum hefur
hingað til aðal-
lega verið merkt-
ur fiskur á
strand- og fjarða-
miðum.
Persónulega er
ég ánægður með
þann árangur,
sem fengizt hefur
hingað til og
þakka hér með
þeim fjölmörgu,
er sent hafa
merki og upplýs-
ingar. Ég vil nota tækifærið til þess að
hvetja alla, er fá merktan fisk, að senda
okkur merkin með sem gleggstum upplýs-
ingum (um þær má lesa í sjómanna-
almanakinu). Mjög nauðsynlegt er fyrir
okkur að fá kvarnirnar og sem nákvæmast
lengdarmál og staðsetningu.
Verzlunarsamningur milli Noregs og ísraels.
Hinn 7. apríl síðastl. var undirritaður
fyrsti verzlunarsamningur milli Noregs og
ísraels. í samningi þessum er gert ráð fyr-
ir vöruskiptum, er nemi allt að 30 millj.
norskra króna. Norðmenn selja m. a. fisk.