Ægir - 01.04.1951, Blaðsíða 32
108
Æ G I R
Hafrannsóknarráð
Norávestur-Atlantshafsins.
í febrúar 1949 var í Washington haldin
ráðstefna þeirra þjóða, sem hagsmuna liafa
að gæta í sambandi við fiskveiðar á Norð-
vestur-Atlantshafi, þ. e. við austurströnd
N.-Ameríku og vesturströnd Grænlands. Til-
gangur þeirrar ráðstefnu var að athuga
möguleika á samvinnu þessara þjóða á
svipuðum grundvelli og verið hefur um
nær liálfrar aldar skeið með þeim þjóðum,
sem eru innan Alþjóðahafrannsóknaráðs-
ins, en það eru allar aðalfiskveiðaþjóðirn-
ar i Evrópu nema Rússar. Niðurstaðan
varð, að undirritaður var samningur, er
síðan hefur verið fullgiltur af nokkrum
þeim ríkjum, sem þátt tóku í ráðstefnunni,
þar á meðal íslandi.
Hinn 10. apríl s. 1. bauð stjórn Banda-
rikjanna síðan til fyrsta fundar Haf-
rannsóltnaráðs Norðvestur-Atlantshafsins
(International Commission for the North-
west Atlantic Fisheries) í Wasliington,
hinum sömu þjóðum og þátl höfðu tekið í
ráðstefnunni 1949.
Til fundarins komu fulltrúar frá þeim
ríkjum, sem fullgilt höfðu samninginn, en
það voru Bandaríkin, Danmörk, ísland,
Kanada og Stóra-Bretland.
Nokkur lönd höfðu ekki fullgilt samn-
inginn, þó ráð sé fyrir því gert að svo verði
síðar og sendu áheyrnarfulltrúa. Voru það
Frakldand, Ítalía, Noregur, Portugal og
Spánn. Þá voru enn fremur áheyrnarfull-
trúar fyrir Alþjóðahafrannsóknaráðið í
Evrópu og matvælastofnun Sameinuðu
þjóðanna (FAO).
Af íslands hálfu sótli þennan fund Árni
Friðriksson, fiskifræðingur.
Var nú formlega gengið frá stofnun Haf-
rannsóknaráðsins, kjörin stjórn, settar upp
nefndir til að leysa ákveðin verkefni
o. s. frv.
Forseti ráðsins var kjörinn fulltrúi
Bandaríkjanna, Hilary J. Deason, sem er
forstöðumaður utanríkisdeildar í fiskimála-
stofnun Bandaríkjanna (Fish and Wild-
life Service). Varaforseti var kjörinn A.
T. A. Dobson, ráðgjafi landbúnaðar- og
fiskimálaráðuneytis Breta. Ritari var kjör-
inn fiskifræðingurinn William R. Martin,
en hann starfar við sjórannsóknastöðina
í St. Andrews í New Brunswick, Kanada.
Settar voru á laggirnar tvær nefndir,
önnur um fjármál og stjórn, en hin um
rannsóknir og skýrslusöfnun. Fulltrúar ís-
lands í þessum nefndum eru Árni Friðriks-
son í hinni fyrri, en Jón Jónsson, fiski-
fræðingur, í hinni síðari, en liann hefur
með höndum þorskrannsóknir hér.
Þá voru samkvæmt því, sem ráð var fyrii'
gert í samningnum, settar upp svæðanefnd-
ir, sem ætlað er það hlutverk hverri að
annast rannsóknir á tilteknu svæði.
Fylgir því alhnikill kostnaður að eiga
fulltrúa i þessum nefndum og taka löndin
ekki þátt í þeim nema þau eigi brýnna hags-
muna að gæta. Það varð því úr, að ísland
skyldi ekki, að svo stöddu, gerast þátt-
takandi í neinni þessara nefnda.
Ákveðið var, að ráðið skyldi hafa aðset-
ur í Kanada, en ekki gengið endanlega fra
hvar. Var fyrst um sinn samþykkt, að það
skyldi vera í St. Andrews í Kanada.
Með stofnun þessa hafrannsóknaráðs hef-
ur verið náð þýðingarmildum áfanga á
sviði haf- og fiskirannsóknanna. Um nær-
fellt hálfrar aldar skeið hefur Alþjóðahaf-
rannsóknaráðið unnið mjög þýðingarmikið
starf á hafsvæðinu í austanverðu Norður-
Atlantshafi og við Vestur-Grænland, en ann-
ars hefur vesturhluti Norður-Atlantshafs-
ins hins vegar orðið nokkuð út undan, þar
sem skort hefur á trausta alþjóðlega sam-
vinnu, sem er e. t. v. nauðsynlegri á sviði
haf- og fiskirannsóknanna en á flestum
öðrum sviðum.
Hyggjum við íslendingar gott til þátt-
töku í þessari alþjóðlegu samvinnu, enda
eiga engir meira undir því komið en við,
að nokkur árangur náist. D. Ö.