Ægir

Årgang

Ægir - 01.04.1951, Side 34

Ægir - 01.04.1951, Side 34
110 Æ G I R Það, sem ráðið verður af lýsingu þess- ari, er: Að verðið virðist vera lágt miðað við verðlagið eins og það er þessa stundina, cn allt cfni hefur hækkað mikið síðan i september 1950, og vinnulaun liafa sjálf- sagt hækkað lika. Eftir aðalmálum skipsins að dæma, er það líklega um 160 rúml. brúttó. Togvinda og togbúnaður er ekki sýnt á uppdrættin- um og líldega ekki mcð í verðinu, þótt talið sé hægt að nota skipið til slíkra veiða. Ekki litur út fyrir, að lestin sé skiljuð og ckki er minnzt á innsúð í henni. Stálþilfar cr senni- lega ekki með tréþilfari yfir, en ólöglegt er að hafa slíkan umbúnað yfir manna- íbúð, ncma aðrar hliðstæðar ráðstafanir séu gerðar. Ekki mundi ísfiskur geymast undir óvörðu stálþilfari, né heldur mundi vera stætt á því við fiskaðgerð. — Tekið er fram, að innangengt sé milli ibúða. Ekki á það þó við um þá, sem búa í lúkarnum, og þar virðist ekki séð fyrir ncinum þæg- indurn með hlífðarföt, salerni eða annað. Ekki eru taldar nema 20 hvílur fyrir 30 menn. Þrátt fvrir aðfinnslurnar getum við lært mikið af frændum vorum Norðmönnum. Fyrst og fremst skipulag, fyrirkomulag í- búða- og þilfarsbúnaðar. Til dæmis er legu- færaútbúnaði á fiskiskipum hvergi eins vel fyrir komið og á norskum skipum, jafnvel á þeim allra minnstu. Legu- eða dráttar- vírinn er ekki geymdur á „spiltrommunni", nci, hann er geymdur á skýldri rúllu frarn- an á lúkarskappanum, tíklega óskemmdur í 2—3 ár. Norðmenn meta mikils að hafa góð legufæri og' að hafa útbúnað til að hag- nýta þau. Að lokum ættum við að læra af Norð- mönnum að smíða öll vor liskiskip stærri en 100 rúmlestir úr stáli, og smíða þau sjálfir. B. G. T. Ur ýmsum áttum. Blaðið „Fiskaren“ hefur það eftir frétta- ritara sínum í Þýzkalandi, að togarinn „Heinrick Bueren“ liafi veitt talsvert af sild í botnvörpu við ísland í febrúar- ferð sinni. Síld þessi þótti ágæt að gæðum og var seld fyrir liæsta verð á markaðnum. Þýzkir skipstjórar telja fágætt að veiða síld í botnvörpu við ísland nema á timabilinu júlí—seplember. Þegar austur-þýzk skip stranda. Síðastliðið sumar strandaði sem kunnugt er rússnesk síldveiðiskúta fyrir Norður- landi, og varð allmikið umtal um það. með hvaða hætti hinir rússnesku sjómenn tóku á móti Islendingum, sem ætluðu að bjarga þeim. — Nú hefur svipið saga gerzt við Borgundarhólm, en þar strandaði ný- lega togari, reyndar ekki rússneskur, en fra hernámssvæði Rússa í Þýzkalandi. Dansk- ir fiskimenn björguðu tveim mönnum af áhöfninni í björgunarstóli. Skipstjórinn neitaði hins vegar að yfirgefa skipið og vildi heldur ekki þiggja aðstoð Dana við að ná skipinu á flot. Hann bað aftur á móti um aðstoð frá Sassnitz, en hið strandaða skip var frá þeim bæ. Tveir togarar þaðan reyndu síðan að ná hinu strandaða skipi á flot, en árangurslaust. íCnn síðar voru svo send á vettvang þrjú hjálparskip með 35 manns ásamt björgunársérfræðing. En ekk- ert af þeim reyndi að ná hinu strandaða skipi á l'lot. Þjóðverjar fóru hins vegar a róðrarbátum að togaranum og tólcu úr hon- um það sem lauslegt var, svo sem vél, v'eið- arfæri, olíu o. s. frv. Ekki var loftskeyta- tæki í skipinu, og þó var það ekki nema H mánaða gamalt. Allt, sem tekið var úr skip- inu, var skilið eftir á strandstaðnum og ekkert um það hirt. Og þó búið væri að létta skipið, var heldur ekki hirt um að na því á flot. Talið er, að þarna hafi farið forgörðum mörg hundruð þúsund króna

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.