Ægir - 15.03.1960, Qupperneq 6
80
ÆGIR
Svanur.......... 192 lestir í 31 róðri
Arnfinnur....... 177 lestir í 30 róðrum
VESTFIRÐIN GAF JÓRÐUN GUR
í febrúar.
Febrúarmánuður var aflasæll hér í
fjórðungnum ekki síður en janúar, en
stormar seinni part mánaðar tálmuðu sjó-
ferðum nokkuð. Nokkrir bátanna úr ísa-
fjarðarbæ fóru 6 sjóferðum færra í febr-
úar en í janúar. Bátar sóttu lengra nú en
í fyrra mánuði, allt suður að Blakknesi og
jafnvel lengra. Hafa verður og í huga, er
aflafengur bátanna í veiðistöðvunum er
borinn saman, að í öllum veiðistöðvum
sunnan önundarfjarðar er aflinn veginn
óslægður og sömuleiðis hér á ísafirði. —
Þá er og línulengdin, og þar með öngla-
fjöldinn, misjafn, t. d. almennt um 40
bjóð notuð á ísafirði, en um 35 í Bolungar-
vík og víðar. — Aflafengur bátanna í
veiðistöðvunum hér er þessi.
Patreksfjörður. Tveir bátanna voru að
veiðum. Vb. Sæborg fékk 227 lestir í 21
sjóferð. Er Sæborg nú metbáturinn í
fjórðungnum og víst aflahæsti fiskibátur
landsins í febrúar. — Sigurfari fékk 199
lestir í 20 sjóferðum. Aflinn veginn ó-
slægður. — Bv. Ólafur Jóhannesson seldi
afla sinn erlendis og vísast söluupphæð
hans í ísfisksöluskýrslur togaranna. Bv.
Gylfi kom úr viðgerð frá Þýzkalandi seint
í febrúar og hefur nú tekið upp veiðar.
Tálknafjörður. Vb. Guðmundur á
Sveinseyri aflaði 217 lestir í 19 sjóferð-
um og er annar aflahæsti báturinn hér —
og raunar aflahæstur miðað við sjóferða-
tölu. — Tálknfirðingur tafðist frá veið-
um í viku og fékk 146 lestir í 13 sjóferð-
um — óslægt hjá báðum.
Bíldudalur. Vb. Jörundur Bjarnason
fékk 95,5 lestir í 12 sjóferðum, Reynir
58,5 lestir í 10 sjóferðum og Geysir 56,5
lestir í 11 sjóferðum. Togarinn Pétur
Thorsteinsson fór tvær veiðiferðir og afl-
aði 104 lestir. — Þrír bátar voru á rækju-
veiðum og öfluðu jafnan vel.
Þingeyri. — Vb. Þorbjörn fékk 119
lestir í 14 sjóferðum, Flosi 104 lestir í 13
sjóferðum og Fjölnir 103 lestir í 13 sjó-
ferðum. Aflinn veginn óslægður.
Flateyn. Einungis vb. Ásbjörn frá ísa-
firði gekk þaðan í mánuðinum. Fékk hann
75 lestir í 13 sjóferðum af slægðum fiski.
Janúarafli Ásbjarnar var hins vegar
ranglega talinn slægður, átti að vera ó-
slægður.
Suðureyri. Vb. Friðbert Guðmundsson
fékk 110 lestir í 17 sjóferðum, Draupnir
105 lestir í 17 sjóferðum, Freyja I. 102,5
lestir í 17 sjóferðum, Freyja II. 90 lestir
í 16 sjóferðum, Hávarður (nýr bátur,
eign frystihússins ísver) 90 lestir í 16
sjóferðum og Freyr um 70 lestir í 14 sjó-
ferðum. Aflinn þarna veginn slægður,
eins og í janúar.
Bolungarvík. Vb. Þorlákur fékk 132
lestir í 21 sjóferð, Einar Hálfdans 128
lestir í 21 sjóferð, Hugrún 117 lestir í 20
sjóferðum og Víkingur 95 lestir í 19 sjó-
ferðum. Einn 8 lesta bátur, Sölvi, var að
veiðum á nærliggjandi miðum og fékk 33
lestir í 16 sjóferðum. Tveir smábátar með
einum manni (annar hafði raunar dreng
með sér til aðstoðar) voru líka að veiðum,
þegar færi gafst. Fékk annar þeirra 3500
kg., hinn 3200 kg.
Einn bátur var að vanda á rækjuveið-
um. Þá var og togarinn Guðmundur Pét-
urs lengstum á veiðum, en aflaði illa, fékk
72,5 lestir í 3 veiðiferðum. Afli Bolungar-
víkurbáta er veginn slægður.
Hnífsdalur. Vb. Rán fékk 122 lestir í
20 sjóferðum, Páll Pálsson 112 lestir í 18
sjóferðum, Mímir 111 lestir í 21 sjóferð.
Aflinn veginn slægður. í 3 bl. Ægis var
afli Hnífsdalsbáta sagður veginn óslægð-
ur, en fiskurinn var veginn slægður sem
nú. Leiðréttist þetta hér með.
ísafjarðarbær. Vb. Guðbjörg fékk 192
lestir í 18 sjóferðum, Gunnhildur 177,2
lestir í 18 sjóferðum, Gunnvör 138 lestir
í 18 sjóferðum, Víkingur II. 136 lestir
í 18 sjóferðum, Hrönn 135 lestir í 17 sjó-
ferðurn, Straumnes 130,6 lestir í 18 sjó-
ferðum, Ásúlfur 124,5 lestir í 17 sjóferð-