Ægir

Árgangur

Ægir - 15.03.1960, Síða 9

Ægir - 15.03.1960, Síða 9
ÆGIR 83 á fiskiðnaðinn í því sambandi, enda virð- lst þetta vera rétt a. m. k. hvað þrjár ef ekki fjórar höfuðgreinar hans snertir — Þ- e. hraðfrystingu, skreiðarverkun, salt- fiskverkun og mjölvinnslu; — er hér að sjálfsögðu átt við möguleg afköst tækj- anna annars vegar og vinnuafl og hráefn- isframboð hinsvegar. Flestir munu geta gert sér grein fyrir kinu slæma þjóðfélagslega ástandi, sem skapast, þegar skortur er á atvinnutækj- um. — Efalaust gera færri sér grein fyrir því vandræðaástandi, sem myndast, begar of mörg atvinnutæki keppa um tak- ^arkað vinnuafl eða hráefni. — Þetta hefur vanalega í för með sér minni al- Wenn vinnuafköst bæði vegna þess, að ýmsir aldursflokkar neðan og ofan við eðlilega aldursflokka vinnandi fólks koma mn á markaðinn — dregnir af eftir- spurninni, en einnig vegna þeirra til- hneiginga fólks til að skipta oftar um vinnu en ella, og nær það af þeim sökum ekki verulegri æfingu í neinni grein. Skortur á hráefni veldur því, að atvinnu- tækin geta staðið ónotuð tímum saman. Þannig skilar fjárfestingin ekki þeim arði, sem til var ætlast og standa átti undir bættum kjörum þeirra sem að framleiðslunni starfa. — Þetta hefur því miður verið tilfellið með verulegan hluta af fjárfestingu hér á landi í fiskiðnaði. Atvinnutækin skila víða ekki þeim arði, sem vænzt var, hvorki til frekari hróunar né til að bæta lífskjör al- mennings. Verður vikið nánar að þessu síðar. Hér á eftir verður nú gei’ð nokkur til- raun til að bera saman afkastagetu og raunverulega úrvinnslu hinna ýmsu Sreina fiskiðnaðarins. — Þar sem ábyggi- legar tölur um afkastamöguleika salt- fisk- og skreiðai-framleiðslunnar eru ekki fyrir hendi, verður einkum rætt um frystingu og mjölvinnslu. f október 1959 voru hér á landi 43 Verksmiðjur, sem unnið gátu úr nær 3000 lestum af fiskúrgangi (öðrum en síld og karfa) á sólarhring; afköst þeirra 36 verksmiðja, sem unnið gátu úr feitfiski námu rúmlega 11.900 lestum á sólar- hring. — Á öllu landinu voru samtals 53 verksmiðjur, sem unnið gátu úr nær 14000 lestum af hráefni á sólarhring. Hér þýðir að sjálfsögðu ekki að miða við árs- afköst, vegna þess að stærstu verksmiðj- urnar eru byggðar með það fyrir augum að starfa aðeins um tiltölulega stutt tíma- bil ár hvert. — Hinsvegar má gera sér grein fyrir því, hvernig þessar verk- smiðjur störfuðu — og hve langan tíma það tók að vinna úr tilfallandi hráefni. Á s.l. ári munu fiskmjölsverksmiðjurn- ar hafa tekið á móti um 120 þús. lestum af úrgangi og öðru hráefni, en það svarar til 40 sólahringa vinnslu að jafnaði. — Þær verksmiðjur, sem unnu einnig eða eingöngu úr feitfiski tóku á móti samtals 131.400 lestum af síld og tæplega 70 þús. lestum af karfaúrgangi, en það svarar til 17 sólahringa vinnslu að meðaltali. — Þó að þessar tölur séu ekki nákvæmar, tala þær þó sínu máli — að um gífurlegt vandamál er að etja. — Þá ber og að hafa í huga, að hráefnisframboðið er mjög misjafnt eftir verstöðvum. Um frystinguna er svipaða sögu að segja. Afkastageta frystihúsanna á s. 1. ári var 1395 lestir af flökum miðað við 16 klst. vinnu á sólarhring, en það svarar til um 4.600 lesta af slægðum fiski með haus eða 1,4 millj. lesta af hráefni miðað við 300 daga vinnslu (heildarfisk- aflinn árið 1959 var 564 þús. lestir). Magn það, sem til frystingar fór, var hinsvegar aðeins 236 þús. lestir af þorski, karfa, ýsu o. s. frv. auk 14.800 lesta af síld. — Jafnvel þótt tekið sé tillit til hins árstíðabundna framboðs, markaðssveiflna, kjötfrystingar o. fl., er hér um að ræða mikið ónotað kapital. Fleiri ný fislciskip. Það má þykja mótsagnakennt, eftir það sem á undan er sagt, að halda því

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.