Ægir

Volume

Ægir - 15.03.1960, Page 19

Ægir - 15.03.1960, Page 19
ÆGIR 93 anna á þessari vöru hin síðari ár, og Perú hefur flutt út mjöl til flestra þeirra landa, er áður keyptu það frá Skandin- avíu. Þeirri spurningu er ósvarað, hvað gerist, ef fiskimjölsiðnaðurinn í Skandin- avíu kemst aftur í eðlilegt horf og verð- fall verður á heimsmarkaðinum. Margar vinnslustöðvar, sem eru í eigu Perúbúa, vinna með fullum afköstum og nýta hráefnið algerlega. Hins vegar eru margar hinna verksmiðjanna langt frá Því að skila fullum afköstum. Afleiðingin verður sú, að afkastameiri verksmiðjurn- ar má reka með hagnaði og selja vöruna Þó á lægra verði; þær afkastaminni verða þá alls ekki samkeppnisfærar hvað kostn- aðinn snertir. Samkeppni á heimsmark- aðinum kann að draga úr mjölvinnslu Perúbúa, þó að tæpast sé hægt að gera i'áð fyrir þeim möguleika, að það ríði henni að fullu. I þriðja lagi: Munu aðrar þjóðir hefja fiskimjölsvinnslu í stórum stíl, með hlið- sjón af hinum góða árangri Perú-búa, og valda þannig verðfalli, með auknu fram- boði á heimsmarkaðinum? Enginn getur svarað því með neinni vissu. Kostnaður hlýtur að aukast. Ef horft er fram til þess tíma, áð ansjósu- torfurnar færi sig fjær ströndinni, þó að ekki verði um minnkun stofnsins að ræða, liggur í augum uppi að mjölframleiðend- urnir í Perú verða að fá stærri báta með kæliútbúnaði, byggða fyrir lengri veiði- ferðir og lengri útivist. Aukinn kostnaður við iðnaðinn kabar á meira fjármagn. Sumir framleiðendurnir eru vel stæðir, aðrir miður. Það mun reynast erfitt fyrir þá síðarnefndu að standa undir slíkri aukningu. En enn sem komið er virðist fiskimjölsiðnaður Perú- búa á uppleið og skilar góðum hagnaði. (Pacific Fisherman). Fiskafli Norðmanna SÍLDYEIÐIN Heildarafli ísað Fryst Saltað í bræðslu Niðursuða hl. hl. hl. hl. hl. hl. 1960 5.3. 2.774.520 273.705 429.040 640.140 1.217.420 109.965 1959 7.3. 4.164.035 394.030 533.260 865.280 2.124.890 136.740 ÞORSKVEIÐIN Heildarafli Hert Saltað ísað og fr. Meðalalýsi Salthrogn smál. smál. smál. smál. hl. hl. 1960 5.3. 30.160 6.043 16.486 7.631 14.221 3.370 1959 7.3. 26.968 12.171 6.550 8.247 11.832 3.813 SJÓMEININ NOTIÐ AÐEINS B O S C H dieselverk FYRIR DIESELHREYFILINN OG GLLDMER-diesel í BÁTINN __Bræðurnir Ormsson h.f. vesturgötu 3 - síhú H4ð7

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.