Ægir

Årgang

Ægir - 15.03.1960, Side 23

Ægir - 15.03.1960, Side 23
ÆGIR 97 Frá 25. Fiskiþingi Aukin og samræmd síldarleit. Fiskiþingið lýsir ánægju sinni með síld- arleit m. s. Fanneyjar við Norður- og Austurland í sumar og við Suðvesturland s- 1. haust. Telur þingið nauðsynlegt, að síldarleit sé haldið uppi allt árið og reynt að fylgj- ast með síldargöngunum umhverfis land- svo sem frekast eru föng á. Fiskiþingið telur óhjákvæmilegt að hafa Þrjú skip til síldarleitar fyrir Norður- og Austurlandi á sumarsíldar-vertíðinni. Hefji a. m. k. tvö þessara skipa kerfis- bundna síldarleit um mánaðamótin maí- júní, auk þess sem Ægir taki þátt í hinni sameiginlegu síldarleit og hafrannsókn- um með nágrannaþjóðunum fram til 25. iúní, eins og verið hefur undanfarin ár. Hftir þann tíma stundi Ægir eingöngu síldarleit til loka síldarvertíðarinnar fyrir Norður- og Austurlandi. Fiskiþingið telur, að það fyrirkomulag, sem haft var sl. sumar að láta Ægi stunda landhelgisgæzlu samhliða síldar- ieitinni hafi reynzt mjög misráðið og ahs ófullnægjandi fyrir síldveiðiflotann. Leggur þingið áherzlu á, að síldarleitin ^ueð flugvélum og skipum sé samræmd sem bezt og verði undir yfirstjórn síldar- leitarstjóra. Verknám atvvnnuveganna og fræðsla. 25. Fiskiþing leggur á það ríka áherzlu, að verknám, sem varðar sjávarútveginn, VerÚi aukið í unglinga- og gagnfræðaskól- am landsins, og nú þegar hafin kennsla * beitingu og meðferð fiskilóða í öllum Jerstöðvum og njóti skólarnir aðstoðar og yrirgreiðslu útgerðarinnar með húsnæði °g tilheyrandi áhöld til kennslunnar. Þá telur Fiskiþingið, að ungmenni skól- anna eigi að fara í sjóferðir, þegar vorar og fá á þann hátt að kynnast því starfi undir leiðsögn skipstjórnarmanna. Þingvísur. Á síðasta Fiskiþingi var Hólmsteinn Helgason frá Raufarhöfn einn af fulltrú- um Norðlendinga, en hann hefur átt sæti á undanförnum þingum. Hólmsteinn hefur gaman af kveðskap og hefur oft látið kviðlinga fjúka á þing- um. Að þessu sinni urðu enn til nokkrar vísur, og þykir rétt að þær geymist á prenti og eru því prentaðar hér. Á meðan á þinginu stóð var fulltrúum boðið að skoða hið nýja varðskip „Óðinn“, og orkti Hólmsteinn við það tækifæri þessa vísu: Hér á í vök að verjast og verður um langar stundir með þreki er þörf að berjast þar sem gullið er undir. Stýri þér Óðni með ströndum styrkur og vit jöfnum höndum. Á síðasta degi þingsins var morgun- fundur og hafði verið ætlunin að Ijúka störfum fyrir hádegisverð, en þá ætluðu fulltrúar að matast sameiginlega. Miklar umræður urðu á fundinum, og varð þeim ekki lokið fyrir hádegi. Undir borðum flutti Hólmsteinn m. a. þessar vísur: Á morgunfundi var mönnum kalt matur á næstu grösum, mælskan flóði út um allt, ekki úr snapsaglösum. Ellin herðir handtök sín, hérna sjáið þið litinn, ævi- ferðafötin mín fara að verða slitin.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.