Ægir - 01.02.1963, Blaðsíða 9
ÆGIR
35
steinn ÞH 285 með 16,1 lest í 9 sjóferð-
um með línu, en flestar sjóferðir fór
Gunnþór ÞH 14, oftast með færi. Samtals
40 menn voru þátttakendur í þessum veið-
um, auk nokkurra í landi við beitingu.
Á 14 opnu bátunum var aðeins 1 maður
á hverjum, en 2 á hinum að tveim undan-
skildum, Þorsteini með 3 og Vilborgu KE
51 með 4 menn, en hún fór aðeins 4 sjó-
ferðir í mánuðinum.
Flestir opnu bátarnir voru með hand-
færi og sumir þilfarsbátarnii' líka fram
eftir mánuðinum. Tíð var heldur óhag-
stæð og fiskilítið.
I októbermánuði var róið frá Raufar-
höfn 16 bátum, 5 þilfarsbátum og 11 opn-
um. Þilfarsbátarnir og 5 opnir með línu,
hinir með færi. Samtals farið 124 sjóferð-
lr- Þátttakendur samtals 28 menn. Aflinn
samtals 133,2 lestir þorskur og ýsa, sl.
ui/haus, auk annarra tegunda, einkum
keilu. Þorsteinn ÞH 285 aflahæstur með
26,2 lestir í 11 sjóferðum. Gæftir mjög
stopular og veiði treg.
M/b Vilborg KE 51, 47 br.lestir, var
keypt hingað sl. vor og gerð út á síld-
veiðar í sumar og var áformað að hún
stundaði veiðar héðan í haust og fram-
eftir með línu, en hætti veiðum úr miðjum
pessum mánuði og var seld til Suðurlands.
AUSTFIRÐINGAFJÓRÐUNGUR
áramót 1962—1963.
I desembermánuði var mjög lítið stund-
aður sjór úr fjórðungnum.
Nokkrir stórir bátar fóru þó fáeina
uóðra og fiskuðu fremur vel eða 5 til 6
tonn að meðaltali í róðri. Ekkert var farið
^ sjó af fjörðunum fyrir sunnan Stöðvar-
tjörð og ekki heldur af fjörðunum fyrir
norðan Norðfjörð.
Framan af mánuðinum var veðráttan
ukyrr, en frá Þorláksmessu og til þessa
oags hefur verið algjörlega kyrrt veður
ng bjai’t, eins og bezt gerist á sumar-
oegi, en alltaf talsvert frost.
Allir stórir bátar eru nú að byrja eða
eru byrjaðir vetrarvertíðina. Þeir sem
ekki fara til verstöðvanna í Vestmanna-
eyjum eða Suðvestanlands eru að hefja
veiðar að heiman, flestir í útilegu aðrir
en þeir sem róa frá Hornafirði. Til
Vestmannaeyja fara eða eru farnir 12
stórir bátar og til Grindavíkur einn. Auk
þess eru 4 á síldveiðum við Suðvesturland,
sem ef til vill fara á þorskveiðar síðar á
vertíðinni. Allmargir minni þilfarsbátar
ráðgera að fara á handfæraveiðar síðar,
þegar síli fer að ganga (loðna), en það
er oftast ekki fyrr en í febrúar.
Væntanlegir eru nú að minnsta kosti 3
nýir bátar stórir í fjórðunginn á þessu
nýbyrjaða ári, hvort sem nokkur þeirra
kemur það snemma að hann byrji veiðar
á vetrarvertíðinni. Koma þeir allir í stað-
inn fyrir aðra báta, sem seldir voru úr
fjórðungnum á árinu eða höfðu farizt.
Eitthvað mun koma af minni bátum nýj-
um, ef til vill fyrir aðra eldri, sem heltast
úr lestinni.
Vetrarvertíðin 1962 var í rýrara lagi í
fjórðungnum. Afli litlu þilfarsbátanna og
opnu vélbátanna var víðast góður og sums
staðar svo að þeir hafa sjaidan aflað bet-
ur, þó öfluðu opnu vélbátarnir á Bakka-
firði með minnsta móti.
Hin mikla og oft yfirborgaða atvinna
í sambandi við síldveiðarnar undanfarin
sumur hefur nokkuð dregið úr smábáta-
aflanum og starfsemi frystihúsanna vegna
skorts á verkafólki.
Afli síldveiðibátanna var yfirleitt mjög
sæmilegur og hjá sumum ágætur þó að
hann væri tæplega hlutfallslega eins góð-
ur og sumarið 1961 ef miðað er við síld-
veiðiflotann allan bæði árin.
Þegar litið er yfir árið 1962 í heild
mun það geta talizt útgerðinni í fjórð-
ungnum fremur hagstætt hvað aflabrögð
snertir.