Ægir

Årgang

Ægir - 15.06.1967, Side 7

Ægir - 15.06.1967, Side 7
Æ GIR 205 Guðni Þorsteinsson, fiskifrœðingur: ISLENZK VEIÐITÆKNI Höfundur þessarar greinar, Guðni Þor- steinsson er fæddur í Hafnarfirði 6. júlí 1936, sonur hjónanna Þorsteins Eyjólfs- sonar fyrrv. skipstjóra og Laufeyjar Guðnadóttur. Guðni lauk stúdentsprófi við Menntaskólann í Reykjavík vorið 1957 og hóf nám í fiskifræði við háskólann í Kiel í Vestur-Þýzkalandi þá um haustið. Þar sem til stóð að hefja rannsóknir í veiðitækni innan Hafrannsóknastofnun- arinnar (þáverandi Atvinnudeildar Há- skólans), varð að ráði, að Guðni tæki að sér að kynna sér þessa grein fiskifræð- innar jafnframt námi sínu, þar sem hann hafði mikið verið til sjós á skólaárum sín- um. Hafði Guðni því samhand við „Insti- tut fiir Fangtechnik" (þáverandi „Institut fur Netz- und Materialforschung“) í Ham- borg á námsárum sínum í Kiel og fór margar rannsóknarferðir með þýzku rann- sóknaskipunum Anton Dohrn og Walther Herwig með þessari stofnun. Eftir að Guðni tók próf í fiskifræði við háskólann í Kiel sumarið 1964, réðst hann til stofn- unar þessarar, þar sem hann starfaði til 31. marz þessa árs, er hann réðst til Haf- rannsóknastofnunarinnar til að hef ja rann- sóknir á íslenzkum veiðarfærum. Væntir Hafrannsóknastofnunin sér mjög mikils af þessum rannsóknum, enda er hér um að ræða mjög þýðingarmikið atriði í is- ^lenzkum sjávarútvegi. Yngsta grein fiskifræðinnar er svo köll- uð veiðitækni (fishing gear research á ensku). 1 mörgum löndum hafa verið sett- ar á fót sérstakar rannsóknarstofnanir til að sinna þessu mikilvæga verkefni. Fram til skamms tíma má segja, að ein- Uugis sjómenn og netagerðarmenn hafi Uunið að því að endurbæta veiðarfæri, án þess þó að hafa tæki né tíma til að öðlast frekari þekkingu á þeim breytingum sem gerðar voru. Oft eru tilraunir með veið- arfæri líka það dýrar, að sjómenn og út- gerðarmenn veigra sér við að eyða pen- ingum og tíma í verkefni þar sem árangur er óviss. Fyrsti vísir að nútíma veiðar- færarannsóknum voru tilraunir með veið- arfæraefni og síðar rannsóknir fiskifræð- inga á áhrifum möskvastærðar botnvörpu á hina ýmsu fiskistofna. Þegar ljóst var orðið hér í Norður-Evrópu, að flestir fiski- stofnar voru full freklega nýttir, hófst víða uppgangur veiðarfærarannsókna. Þar sem tæplega er ráðlegt að taka árlega meira magn úr fiskistofnunum en nú er gert, er hlutverk veiðitækninnar ekki fyrst og fremst aukið heildarveiðimagn heldur aðallega að veiða sama magn með minni tilkostnaði og vinnu en áður. nýting fleiri fisktegunda svo og að útbúa veiðarfæri, sem skila fiskinum í betra ástandi en áður. Eins og þegar hefur verið tekið fram voru fiskifræðingar brautryðjendur veiði- tækninnar í ýmsum löndum. Á síðustu ár- um hefur þó mikið borið á, að tæknilærðir menn eins og skipaverkfræðingar og iðn- fræðingar byrji að starfa í rannsóknar- stofnunum fyrir veiðitækni. Þessi þróun hefur skapazt vegna örrar tækniþróunar á sviði fiskileitar og vinnuvísinda hin síð- ari ár. Þó má segja, að bæði skipaverk- fræðingar og tæknifræðingar, sem feng- izt hafa við uppbyggingu og þróun fiski- leitar- og annarra tækja um borð, hafi starfað mun lengur í sínum greinum en veiðitæknistofnanir eru gamlar, svo að skilgreining veiðitækninnar er síður en svo einföld. Prófessor v. Brandt, einn þekktasti vísindamaður á sviði veiðivís- indanna og einn af stofnendum hennar, skilgreinir verkefni þessarar greinar/a eftirfarandi hátt: (stytt og breytt). a) Efni til neta- og kaðlagerðar. Rann- sóknir þessar eru mjög mikilvægar. Næg-

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.