Ægir - 15.10.1972, Síða 26
348
ÆGIR
þróunar frystra afurða, sem varð á ár-
inu. Nokkuð af þeirri hækkun stafar frá
tilfærslu milli markaða, en engu að síður
urðu talsverðar hækkanir verðs, einkum
blokkar. í fyrra ársyfirliti var ekki gert
ráð fyrir að verðlag frystra afurða mundi
hækka verulega á árinu þar sem verðlag
var orðið það hátt, að víxlteygniáhi-if milli
frystra fiskafurða og annarra fæðutegunda
mundu fara að gera vart við sig í ríkara
mæli en áður hafði átt sér stað. Þetta átti
sér stað í nokkrum mæli en hins vegar kom
það ekki fram í verði svo sem vænta mátti,
heldur í minnkandi fiskneyzlu. Ástæða
þessa er að framleiðsla frystra fiskafurða
dróst nægjanlega saman til að koma í veg
fyrir verðáhrif og heldur meira en það.
Ástæður þessa samdráttar eru fyrst og
fremst minni veiðar þeirra tegunda, sem
henta bezt til frystingar. Aðrar ástæður eru
að framboð fisks til frystingar dróst saman
vegna framboðsskorts á ferskfiskmörkuð-
um, sem leiddi af sér að frystitogarar kusu
heldur að selja ferskan fisk, en frystan.
Nam samdráttur í framleiðslu frystiskipa
á frystum afurðum, einkum blokk, um 25
þús. lestum, sem er um 30%. Enn eina
ástæðu er hægt að nefna, en það er staðar-
dreifing fiskframboðsins. Einkum átti
þetta sér stað í Noregi, þar sem framboðið
á fiski færðist til staða, sem ekki hafa
möguleika til frystingar. Af þessum orsök-
um dróst framboð á fiski til frystingar þar
saman á árinu um rúmar 43 þús. lestir.
Sem fyrr voru Bandaríkin langþýðingar-
mesti markaður okkar fyrir sjávarafurðir
og tóku þau við um 42,5% af heildarút-
flutningi sjávarafurða á árinu. Árið 1970
var hlutdeild þeirra 37,2%. Stafar mest-
allur hluti þeirrar aukningar sem varð á
útflutningsverðmæti sjávarafurða á árinu
frá auknum kaupum Bandaríkjamanna. Á
útflutningi til EFTA-landanna varð sára-
lítil breyting á árinu og útflutningur til
Efnahagsbandalagsríkj anna dróst saman
um rúmar 160 millj. kr. Að krónutölu varð
aukning í útflutningi til Austur-Evrópu-
þjóðanna, en hlutdeild þeirra fór minnk-
andi.
Sem fyrr minnkuðu viðskiptin við Afr-
íkuþjóðir og var hlutdeild þeirra aðeins
0,2%. Hæst varð hlutdeild þeirra 1964,
5,4%. Veruleg hlutfallsleg aukning varð á
sölu til Asíuþjóða, sem að mestu stafar af
kaupum Japana á frystri loðnu.
S*156
1) CABLE S-156 2) CABLE 6 x 25+1 FILLER
3) CABLE 6x19 + 1 SEALE 4) CABLE 6 x 19+1 NORMAL
ný gerð af galvaniseruðum 35;
togvír,sem fullnægir öllum
kröfum til togveiða frá: 3°j
SOCIEDAD FRANCO ESFANOLA !====; 4
DE alambres CABLES Y TRANSPORTES AEREOS.SA. " \
SANDVIK HF.
Bárugötu15, Rvik. slmi 25741, RO.Box763
20 30
60 70
80 90 100 110
slitþol