Ægir

Årgang

Ægir - 01.02.1973, Side 8

Ægir - 01.02.1973, Side 8
 Mynd 3. Beitningarvélin (14 á mynd 1). þeir, sem kerfið notar eru af venjulegri gerð. Áður en línan kemur inn á vinduna dregst hún gegnum þröngan munn og þegar krókarn- ir lenda þar krækjast þeir á skinnu sem þeir dragast eftir inn á annan jaðar línuskífunnar. Á milli línuskífunnar og línustokksins er komið fyrir tengistykki til að krókarnir geti runnið af skífunni niður á stokkana. Sem fyrr segir er aðeins önnur rennan notuð í drætti, hin er notuð sem vararenna, þ. e. a. s. fyrir þá króka, sem bæta þarf á eftir drátt, svokölluð ábót. Stampar þeir sem nota má eru af venjulegri gerð. Innanvert á stampana er fest járnstykki. Línubugtum sem á þarf að bæta nýjum taum- um og krókum er krækt á þetta járn. Beitningarkerfi. Beitningarkerfið eða beitningarvélin er einföld að gerð og það athyglisverðasta er að ekki þarf vél þessi neinn drifkraft annan en tog linunnar sem skapast þegar línan er lögð og báturinn keyrir áfram á hæfilegri ferð. Ás línunnar sem liggur hingaður í bugtir eftir dráttinn er tekinn úr stampnum og lagður í skúffu sem er áföst beitningar- vélinni. Skúffa þessi er tvískipt og verkar því eins og tvískipt línurenna. Línustokkarnir eru festir í ,,statif“ á beitningarvélinni. Af stokknum dragast krókarnir síðan inn á skinnu og þaðan inn á auga. Auga þetta er eins- konar flutningstæki fyrir króka frá fyrr- nefndri skinnu og að beitunni. Samsíða aug- anu er hnífur, sem hreyfist með því og þegar krókur hefur krækzt í beitu, sker hnífurinn beituna. Beitan losnar úr gripörmum, sem halda henni, krókurinn losnar úr auganu og gormur dregur augað og hnífinn til baka í upphafsstöðu og þá er ný beita komin í grip- arminn og vélin tilbúin að taka við næsta krók. Óskorin beita er lögð langsum í rennu, sem stendur hornrétt á ás línunnar. Hægt er að stilla vélina þannig, að hún skeri ákveðnar stærðir af beitu. Eins og áður er getið er beitningarvélin mjög einföld og mjög auðvelt að skipta um hluti og þrífa hana. Vélin er að öllu leyti smíðuð á verkstæði framleiðanda. „Mekanism- inn“ í vélinni er úr ryðfríu stáli. Það verður að teljast kostur að auðvelt á að vera að bæta úr ef eitthvað fer úrskeiðis og á hvaða vélstjóri sem er að geta séð um það. Plássið sem vélin tekur er um einn metri á hvorn kant, og er vélinni komið fyrir aftast á dekki, aftur undir skut. Reynsla Færeyinga. 16. janúar s. 1. var farið út með Önnu Maríu FD 15, sem er 20 rúmlestir að stærð. Bátur- inn er búinn að hafa línuvélakerfi þetta síðan í ágúst 1971. Fram í júní 1972 var um til- raunakeyrslu að ræða og á þeim tíma var kerfið þróað eftir því sem gallar komu fram. Þróun þessi var þó aðallega í sambandi við beitningai'vélina, þar sem hreinsi- og afvind- unarkerfið hafði verið sett í báta áður og komin reynsla á það. Síðan í júní s. 1. hefur báturinn keyrt sjálfstætt og á þeim tíma hefur 24 — Æ G IR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.