Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.02.1973, Qupperneq 9

Ægir - 01.02.1973, Qupperneq 9
aUt gengið vel og ekki neitt komið fram sem hamlað hefur veiðunum. í túrnum voru lagðir 3 stokkar eða 6-700 krókar. Línan sem notuð var er að sverleika 5 mm og fjarlægð milli tauma 1.85 m eða um einn faðmur. Krókar af stærð 7. Sá lagningarhraði sem vélin getur unnið á, er um 90 krókar/mín. og talning, sem gaf 86 króka/mín. staðfestir, að vélin getur unnið á þeim hraða. Miðað við að 90 krókar renni Segnum vélina á mínútu, verður lagningarhi-að- mn 5,4 sjómílur. Beitan sem notuð var var hæði makrill og smokkfiskur og var hún yfir- leitt handskorin langsum og hryggurinn tekinn U1’ makrilnum. Fylgzt var vel með, hvernig velin beitti og var það samdóma álit allra að vel væri beitt og ekki var hægt að gera grein- ai'mun á hvort beitt var makríl eða smokkfiski. Beitningarvélin er þannig stillt að bitastærð- 'n er um 3 cm. Samkvæmt upplýsingum skip- yerja á Önnu Maríu er beitumagn um 6-7 kg. á 400 króka bjóð. Fyrir utan það, að geta beitt þessum tveimur tegundum, getur vélin beitt síld, en síld nota Færeyingar lítið sem ekkert fyrir beitu. Beitningarvélin beitir að meðaltali með 80% árangri að sögn framleiðanda. Eftir að línan hafði verið lögð var hún fljótlega dregin inn. Línan dregst yfir rúllu, sem hvílir á öldustokk stjórnborðsmegin. Það- að fer linan eftir rennum þvert yfir dekkið að bakborðssíðunni og aftur eftir síðunni °S inn í hreinsi- og afvindunarkerfið. Eram á dekki, stjórnborðsmegin, er linuvinda sem notuð var við línudráttinn áður en kerfið var sett í bátinn. Ekki er lengur þörf á vindu þessari við sjálfan línudráttinn, en aftur á móti er hún notuð við að draga bólfæri. Þegar dregið er inn á stokka, eru að sjálf- sögðu takmörk fyrir því, hversu hratt má draga, en samkvæmt upplýsingum Færeying- anna er dráttarhraðinn um 20 krókar/mín. undir eðlilegum kringumstæðum. Ekki var að sjá að neinar beituleifar væru á krókunum, né heldur að taumar væru margsnúnir um ás línunnar, þegar línan kom úr hreinsi- og afvindunarkerfinu. Það kom fyrir að einn og einn krókur hrökk af brautinni sem liggur að stokknum, en ávallt stendur einn maður við línuvinduna og sér um að ás línunnar hringist niður í stampinn og aðgætir jafn- framt að krókar fari inn á stokkinn- Samkvæmt upplýsingum skipvei'ja á Önnu Maríu haga þeir vinnubrögðum þannig, að yfir vetrartímann eru 3 á sjó og 1 í landi, en á þessum tíma eru þeir í dagróðrum. Þeir róa með rúma 8000 króka eða tæplega 40 stokka. Til að stytta dráttartímann draga þeir beint í stamp en nota ekki línustokkana. Með þessum vinnubrögðum stytta þeir drátt- artímann um 2 tima, miðað við umrædda línu- lengd. Landmaðurinn hefur svo það verkefni að stokka línuna upp og bæta á. Þeir sögðu að vinnutíminn væri langur hjá honum og þetta krefðist þess að sjálfsögðu að hafa verð- ur að minnsta kosti 2 gengi af línu. Það kom einnig fram hjá þeim að þeir fiskuðu til jafns við aðra báta, sem ekki væru n ÆGIR — 25

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.