Ægir - 01.02.1973, Blaðsíða 14
greinilegt er að allt hefur ver-
ið gert til að minnka vinnu
áhafnar við flutning á fiski.
Færibanda- og vélakerfið er
allt tvöfalt, þannig að unnt er
þegar við fiskmóttökuna, að
skipta fiskinum upp eftir því
hvernig meðhöndla á fisk-
inn og í hvaða hluta lestarinn-
ar fiskurinn á að fara.
Til að fjarlægja þann sjó,
sem eðlilega kemur inn á
milliþilfarið, eru tvær dælur.
Þessar dælur eru staðsettar
bakborðsmegin að aftan og
stjórnborðsmegin að framan á
vinnuþilfarinu. Afköstin, sem
hvor dæla getur skilað eru 80
m-Vklst.
í lokuðu rúmi stjórnborðs-
megin á milliþilfari eru tveir
pottar til lifrarbræðslu. Ekki
er gert ráð fyrir mikilli
bræðslu, þar sem slægingar-
vélin eyðileggur lifrina, og til
bræðslu kemur því aðeins iif-
ur frá handslægingunni.
Fiskilest.
Fiskilest togarans er um það
bil 730 m3 að stærð, og ættu
þar að rúmast ca. 450 tonn
af fiski. Lestin er einangruð
með um 20 cm. þykkri gosull,
sem að innan er klædd áli. 1
lofti lestarinnar eru kælispír-
alar, en kælingin á að geta
haldið 0°C í lest miðað við
18°C sjávarhita og 20°C loft-
hita. Kælimiðill er Freon R12
og kæliþjappan er af gerðinni
Worthington 3HF 4/N, knúin
af 10 ha. ASEA rafmótor.
Uppstillingin er úr áli, og er
stíustærðin valin þannig, að
unnt er að fylla upp milli þver-
skilrúmanna í lestinni með
fiskikössum. Lestarop eru
fjögur, svo vel ætti að ganga
að losa skipið.
Brú.
Brúin er mjög rúmgóð, og
eins og við er að búast eru
þar öll þau tæki, sem íslenzk-
um sjómönnum finnast nauð-
synleg, en þau eru orðin
margbreytileg.
í afturhluta brúarinnar eru
stjórntæki fyrir togvinduna,
en henni má hvort sem er
stjórna frá brú eða vindupaili.
Ekki eru beinir togmælar á
vinduna, en með því að lesa
af þrýstinginn á vindubrems-
unni er unnt, með hjálp töflu,
að ákvarða togkraftinn á vír-
ana.
í loftskeytaklefa er fjar-
skiptastöð frá M. P. Pedersen.
Þar er um að ræða senditæki
fyrir bæði tal og morse og tvo
móttakara. Það er einnig neyð-
arsendir þar og móttakari af
verða hér talin hin helztu:
Rediton gerð. Nýjung um borð
er veðurkortamóttakari, en
hann er frá Taiyo.
í fremri hluta brúarinnar eru
hin eiginlegu siglingatæki og
verða hér talin hin helztu:
Ratsjár: Tvær ratsjár frá Kel-
vin Hughes, önnur af gerð-
inni 18/12 C, en hin 19/12
S. Tveir ratsjárskermar,
annar 10 cm. hinn 3 cm, með
afísingartækjum. Unnt er að
kúpla skermunum á hvora
ratsjána sem er.
Dýptarmælar: Hér er um svo-
kallað „Humber Gear“ kerfi
frá Kelvin Hughes að ræða.
Þetta eru tveir dýptarmæl-
ar af MS 44 gerð (annar
blaut-, hinn þurrpappírs),
fisksjá og sjálfriti fyrir
fisksjána.
Asdic: Simrad SB2.
Höfuðlínumælir: Elac.
Loran: Mieco 6805.
Miðunarstöð: Taiyo TD-A120.
Örbylgjustöð: Rediton.
Gyroáttaviti: Áttaviti og sjálf-
stýring er frá Anschúts.
30 — Æ GIR