Ægir - 01.02.1973, Blaðsíða 15
Islandsmet
Einar Sigurðsson, eigandi Sigurðar, afhendir Arinbirni málverk
eftir Kjarval í viðurkenningarskyni.
íslandsmet eru sjaldan nein
afrek á heimsmælikvarða í
iþróttum, en sú atvinnugrein
er til, þar sem íslandsmet get-
ur jafnframt verið heimsmet,
°g það eru fiskveiðar. Alveg
vafalaust er það, að það hefur
enginn 1000 lesta togari verið
>ueð jafnmikinn þorskfiskafla
á þessum hnetti okkar og tog-
arinn Sigurður síðast liðið ár
og reyndar síðast liðin 5 ár,
því að þetta skip er nú afla-
hæst íslenzkra togara fimmta
árið í röð undir stjórn Arin-
hjarnar Sigurðssonar.
Þetta er líka íslandsmet.
Mér er ekki kunnugt um að
nokkur íslenzkur togaraskip-
stjóri hafi verið aflahæstur 5
ár í röð. Hinn mikli aflamað-
Ur Bjarni Ingimarssson, og
kannski fleiri, hafa oftar orð-
!ð aflahæstir á sínum skip-
stjórnarferli, en af þeim gögn-
Unb sem mér hafa verið tiltæk
eg þeim spurnum, sem ég hef
haldið uppi um þetta, held ég
að fullyrða megi, að þetta sé
met hjá Arinbirni í okkar tog-
arasögu, að vera aflahæstur á
þorskveiðum 5 ár samfleytt.
Arinbjörn Sigurðsson er
fæddur 11. júní 1928, sonur
Sigurðar Eyleifssonar, þekkts
togaraskipstjóra — lengi með
Kveldúlfstogarann Arinbjörn
hersi — 0g konu hans Ólafíu
Ingimundardóttur. Bæði faðir
°g móðir Arinbjarnar eru ætt-
uð af Seltjarnarnesinu og mý-
grútur af aflasælum skútu-
hörlurn í báðum ættunum.
Arinbjörn fór snemma til
s]ós, fyrst sem strákur með
föður sínum, en 16 ára var
hann fullgildur háseti á tog-
ara. Hann var lengst af með
þeim mæta skipstjóra, Guð-
mundi Markússyni, sem lézt á
síðastliðnu ári, og hljóðlega,
eins og hann lifði. Minningar-
greinarnar um þennan merka
sjómann náðu því varla að
fylla dálk í blaði. Árið 1963
tók Arinbjörn við skipstjórn á
togaranum Aski, sem var eign
Kletts h.f.
Þegar Askur var seldur,
varð Arinbjörn skipstjóri á
Sigurði. Það var 1967. Hann
aflaði strax ágætlega á Sig-
urð og árið eftir að hann tók
við honum varð hann aflahæst-
ur og hefur verið það síðan.
Afli Arinbjarnar ' á Sigurði
hefur verið sem hér segir:
1967 4470 tonn
1968 4403 —
1969 4894 —
1970 4889 —
1971 4301 —
1972 3964 —
Þetta er nú sennilega síð-
asta árið, sem Arinbjörn er
með Sigurð, því að ætlunin er
að hann taki pólska togarann,
sem Einar Sigurðsson á í smíð-
um og kemur síðla árs, ef allt
gengur að óskum.
Ásg. Jak.
Æ GIR — 31