Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1973, Síða 18

Ægir - 01.02.1973, Síða 18
Það mun hafa venð a árinu 1940, að ég tók mér ferð á hendur til Austfjarða. Ég hafði þá nýlega tekið við starfi forseta Fiskifélags íslands og þetta var fyrsta ferð mín á veg- um félagsins, farin í þeim erindum fyrst og fremst að kynnast mönnum og málefnum sjávarútvegsins á Austfjörðum. Ég þekkti að vísu nokkuð til austur þar, því þaðan var ég upprunninn, en í þessari ferð átti ég eftir að kynnast mönnum, sem síðar urðu samstarfs- menn mínir á vettvangi Fiskifélagsins um áratuga skeið. Einn þeirra var Árni Vilhjálms- son, þá útvegsbóndi á Háeyri við Seyðisfjörð. Mér er minnisstæð heimsóknin til Árna að þessu sinni, því þessi fyrstu kynni voru bæði skemmtileg og lærdómsrík fyrir mig. Gisti ég hjá þeim hjónum Árna og Guðrúnu á Há- eyri og naut þeirra mikiu gestrisni og þess að hlusta á Árna segja frá margháttaðri reynslu sinni af fiskveiðum, en hann hafði frá blautu barnsbeini verið við sjómennsku rið- inn. Enda þótt landbúskapur væri einnig stund- aður, voru fiskveiðarnar hans aðalstarf og þar kynntist hann af eigin raun þeim vandamál- um, sem fiskimenn við Islandsstrendur urðu að glíma við á bernskuárum vélbátaútgerðar og togara. Þessi reynsla Árna átti eftir að koma hon- um að góðu gagni síðar þegar hann helgaði sig félagsmálastarfi sjávarútvegsins. Snemma mun Árni hafa fengið áhuga á þeim málum og orðið þar fyrir áhrifum frá föður sínum Vilhjálmi útvegsbónda Árnasyni á Hánefs- stöðum, sem var mikill áhugamaður á því sviði. En það var þó fyrst eftir að Árni hætti sjómennsku og útgerð sjálfur, að honum gafst gott tóm til að sinna þeim málum svo sem hugur hans stóð til. Fyrirferðarmest urðu þessi störf Árna innan vébanda Fiskifélags- ins, en þau hóf hann í heimabyggð sinni á Hánefsstaðaeyrum, þar sem hann gerðist for- maður fiskideildarinnar og fulltrúi hennar á fjórðungsþingum fiskideildanna í Austfirð- ingafjórðungi. Árna var fljótt sýndur trún- aður í þessum samtökum og var formaður Fjórðungssambandsins um langt árabil og ár- ið 1946 var hann fyrst kjörinn á Fiskiþing. Átti hann þar sæti fram til 1960, var ritari þingsins 1957 en á síðasta þinginu, sem hann sat, var hann kjörinn forseti þess. Mest starf á þessu skeiði ævi sinnar vann Árni þó sem erindreki Fiskifélagsins í Austfirðingafjórð- ungi. En jafnframt þessum störfum hafði Árni brennandi áhuga á málefnum Slysavarnafé- lagsins og innti þar mikið og óeigingjarnt starf af hendi. Af því sem ég hef hér talið, má glöggt sjá, að Árni Vilhjálmsson átti mikilvægan þátt í þróun Fiskifélagsins og stofnana þess um ára- tugaskeið. Þar átti ég þess kost að kynnast honum í starfinu. Árni var vel fallinn til starfa og forystu á sviði félagsmála, enda reyndist hann farsæll í störfum sínum. Hann hafði staðgóða þekk- ingu á þeim málum, sem hann starfaði að, var vel máli farinn og kunni vel að setja mál sitt skýrt fram og umfram allt var hann sann- gjarn og velviljaður og fór þá ekki í mann- greinarálit. Þessir hæfileikar Árna komu eink- ar vel fram á fiskiþingum, því stundum kom t Minningarorð Árni Vilhjálmsson, fyrrverandi erindreki. 34 — Æ GI R

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.