Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1973, Síða 19

Ægir - 01.02.1973, Síða 19
t Minningarorð Þorvarður Björnsson fyrrverandi yfirhafnsögumaður. Þorvarður Björnsson fæddist 14. nóv. 1889 á Kirkjubóli á Bæjarnesi á Austur-Barða- strönd af vestfirzkum ættum. Hann varð gagn- fræðingur frá Flensborg 1908 og lauk far- rnannaprófi frá Stýrimannaskólanum í Reykja- yik 1912. Sjómennsku hóf hann 1902, þá 13 ára gamall. Eftir að hann lauk stýrimanna- prófi var hann stýrimaður á skútum og mót- orbátum, en réðst á verzlunarskip 1918, og var síðan stýrimaður á dönsku skipi á árun- um 1919—22, en þá fór hann í land og ann- aðist fiskkaup fyrir danskt fyrirtæki. Hann varð hafnsögumaður við Reykjavíkurhöfn 1923 og yfirhafnsögumaður varð hann 1928 og því starfi gegndi hann til 1960, að hann lét af störfum fyrir aldurssakir. Þorvarður var í stjórn Skipstjórafélags íslands á árun- um 1939—62 og fulltrúi þess félags í Sjó- mannadagsráði og jafnframt í stjórn ráðsins til 1960 og gjaldkeri Dvalarheimilisins í fjölda ára. Hann var í stjórn Stýrimannafél. íslands um hríð og formaður þess félags í tvö ár. Á fiskiþingum var hann fulltrúi frá 1940 — og um skeið í stjórn Fiskifélagsins og vara- stjórn. Hann var ávallt mjög áhugasamur um mál- efni Fiskifélagsins og þar með hagsmunamál sjávarútvegsins. Tók hann venjulega virkan þátt í umræðum og tillögugerð á Fiskiþingum. Þorvarður var sæmdur danska heiðursmerk- inu „Belönningsmedaille" 1935 og gullmerki Sjómannadagsins 1964. Hann kvæntist 1. nóv. 1913 Jónínu Bjarna- dóttur, sjómanns í Dýrafirði. Tvö barna þeirra hjóna eru á lífi, þau Petrína hjúkrunarkona og Gunnar skipstjóri á Lagarfossi. Annar son- ur þeirra hjóna, Bjarni, fórst með e.s. Heklu, þegar hún var skotin niður 29. jan. 1941 á leið frá Bandaríkjunum. Dóttur, Elínu, misstu þau hjón 1966. Þorvarður dó 4. júní 1972, þá 82 ára að aldri. Það varð snöggt um hann. Hann veikt- ist um 10-leytið að morgni og lézt á fimmta tímanum síðari hluta dagsins. M. El. það fyrir, að menn deildu þar allhart. Var Arni þá jafnan mannasættir og forðaðist all- ar öfgar í málflutningi, þó hann gæti verið fastur fyrir. Árni Vilhjálmsson andaðist 11. jan.. s.l., en fæddur var hann 9. apríl 1893. Hann var tví- kvæntur. Var fyrri kona hans Guðrún Þor- varðardóttir frá Keflavík, en hún lézt 1957. Eignuðust þau fjögur mannvænleg börn. Seinni kona hansvar Magnea Magnúsdóttir frá Njarð- vík. Nú að leiðarlokum minnist ég samstarfs okkar Árna, sem stóð óslitið um tveggja ára- tuga skeið, með ánægju, því þar bar aldrei neinn skugga á. Þann hlýhug, sem hann bar til mín og minna og sýndi svo oft, kunni ég vel að meta og ber vel að þakka. Davíð Ólafsson. Æ GI R — 35

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.