Ægir - 01.02.1973, Side 24
Bann við botnvörpu- og flotvörpuveiðum
LÖG
um breyting á lögum nr. 62
18. maí 1967, um bann gegn
veiðum með botnvörpu og flot-
vörpu, sbr. lög nr. 21/1969 og
lög nr. 50/1971.
1. gr.
í stað orðanna „settri sam-
kvæmt lögum nr. 44 5. apríl
1948“ í 1. málsgrein 1. gr. lag-
anna komi orðin: nr. 189 14.
júlí 1972.
2. gr.
Á eftir 3. mgr. 1. gr. lag-
anna (sbr. 1. nr. 21/1969)
komi ný málsgrein, svo hljóð-
andi:
Ráðherra er heimilt að feng-
inni umsögn Hafrannsókna-
stofnunarinnar að veita leyfi
til loðnuveiða í landhelgi með
flotvörpu. Getur ráðherra
bundið leyfið þeim skilyrðum,
er hann telur nauðsynleg. Skal
það varða sviptingu veiðileyfa,
ef bolfiskur er veiddur í þetta
veiðarfæri.
3. gr.
Á eftir lið C2 í 2. gr. lag-
anna (sbr. 1. nr. 21/1969) komi
nýr liður, svo hljóðandi:
G2. Frá línu réttvísandi suð-
austur af Selskeri að 18° vest-
lægri lengd er heimilt að veiða
með botnvörpu og flotvörpu
utan línu, sem dregin er 12
sjómílur utan við grunnlínu
samkvæmt reglugerð nr. 189/
1972.
Á eftir lið G1 í 2. gr. lag-
anna komi nýr liður, svo hljóð-
andi:
G2. Frá línu, réttvísandi
vestur frá Bjargtöngum
(grunnlínupunktur 26 skv.
reglugerð nr. 189/1972) að línu
réttvísandi norður frá Horni
(grunnlínupunktur 1) er
heimilt að veiða með botn-
vörpu og flotvörpu utan línu,
sem dregin er 12 sjómílur ut-
an við grunnlínu samkvæmt
reglugerð nr. 189/1972.
4. gr.
Á eftir 3. gr. laganna (sbr.
1. nr. 21/1969) komi þrjár nýj-
ar greinar, svo hljóðandi:
a. (4. gr.) Nú á sér stað á til-
teknu veiðisvæði seiða- og
smáfiskadráp í þeim mæli,
að varhugavert eða hættu-
legt getur talizt, og skal
þá sjávarútvegsráðuneytið,
að fenginni umsögn Haf-
rannsóknastofnunarinnar,
gera nauðsynlegar ráðstaf-
anir til að sporna gegn því.
Er ráðuneytinu heimilt með
tilkynningu að loka af-
mörkuðum veiðisvæðum um
lengri eða skemmri tíma
fyrir öllum togveiðum, svo
og öðrum veiðum, ef nauð-
synlegt þykir. Jafnan skal
umsögn Hafrannsókna-
stofnunarinnar liggja fyrir,
áður en slíkar tímabundnar
veiðitakmarkanir eru úr
gildi numdar.
b. (5. gr.) Þrátt fyrir ákvæði
laga þessara getur sjávar-
útvegsráðuneytið auglýst
ný friðunarsvæði og breyt-
ingar á eldri friðunarsvæð-
um, enda hafi áður verið
leitað álits Hafrannsókna-
stofnunarinnar um slikar
ákvarðanir.
c. (6. gr.) Sjávarútvegsráðu-
neytið skal beita sér fyrir
auknu eftirliti með veiðum
fiskiskipa innan fiskveiði-
lögsögunnar, þar sem meg-
ináherzla er lögð á að fylgj-
ast með veiðarfæraútbún-
aði skipanna, stærð þess
fisks, sem veiddur er, svo
og öðru því, er við kemur
vernd fiskistofnanna.
Aðrar greinar laganna
breyti um röð í samræmi við
þetta, þannig að 4. gr. verður
7. gr. o. s. frv.
5. gr.
í stað orðanna „til ársloka
1972“ i 8. gr. laganna (sbr.
lög nr. 21/1969 og lög nr. 89
/1971) komi: til 1. júlí 1973.
6. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört að Bessastöðum,
31. desember 1972.
Kristján Eldjárn.
(L. S.)
Lúðvík Jósepsson.
GM
CENIBAL MOTOBS
DIESEL
UMBOÐIÐ |
GARÐASTRÆTI 6 - REYKJAVlK - SlMI 11634
40 — Æ C, I R