Ægir - 15.11.1973, Qupperneq 8
Fiskideild Reykjavíkur, Hafnarfjarðar og ná-
grennis:
Kristján Ragnarson;
Sveinn Benediktsson;
Þorsteinn Gíslason;
Sigurður Einarsson.
Landssamband íslenzkra útvegsmanna:
Ágúst Flygering, Hafnarfirði.
Félag ísl. botnvörpuskipaeigenda:
Marteinn Jónasson, Reykjavík.
Sjómannasamband íslands:
Jón Sigurðsson, Reykjavík.
Farmanna- og fiskimannasamband íslands:
Ingólfur Stefánsson, Reykjavík.
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna:
Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson, Reykjavík.
Félag Sambands fiskframleiðenda:
Jón Karlsson, Garðahreppi.
Sölusamband ísl. fiskframleiðenda:
Tómas Þorvaldsson, Grindavík.
Félag síldarsaltenda á Norður- og Austur-
landi:
Jón Þ. Árnason, Reykjavík.
Félag síldarsaltenda á Suð- vesturlandi:
Gunnar Flóvenz, Kópavogi.
Samlag skreiðarframleiðenda:
Karl Auðunsson, Hafnarfirði.
Félag fiskimjöls framleiðenda:
Jónas Jónsson, Reykjavík.
Ályktanir
32. Fiskiþings
Ægir biriir hér alhnargar ályktanir 32. fiski-
þings og mun vxntanlega birta fleiri síðar.
Hagnýting fiskveiðilandlielginnar.
32. Fiskiþing leggur áherzlu á, að við setn-
ingu laga um nýtingu fiskveiðilandhelginnar
verði fylgt þeirri meginstefnu, að lagasetning-
in verði frjálsleg og við það miðuð að sam-
ræma hagræn.líffræðileg og félagsleg markmið
í fiskveiðum og sjávarútvegi landsmanna. Tel-
ur þingið óeðlilegt, að veiðiheimildir séu fast-
bundnar með lagasetningu vegna stöðugra
breytinga á fiskigöngum, útgerðarháttum,
stærð og búnaði veiðiskipa og veiðarfæra.
Fiskifélagi fslands verði falið að hafa á
hendi söfnun álitsgerða frá útgerðarsvæðum
landsins um einstaka þætti fiskveiða, og stjórn
félagsins falið að velja þá aðila sem umsagnar
yrði leitað hjá um einstaka þætti, og síðan
að samræma sjónarmið, eftir því sem unnt
er, og gefa umsögn til sjávarútvegsráðuneytis-
ins, sem hafi heimild til að setja tímabundnar
eða staðbundnar reglugerðir, byggðar á þeim
niðurstöðum.
Hlutverk Hafrannsóknastofnunarinnar verði
lögbundið við þann þátt, að gefa álit, studd
vísindalegum rökum, fyrir heildarstefnu í
veiðimálum eða nauðsynlegum friðunarmálum,
byggt á ástandi fiskstofna á hverjum tíma.
Eftirlit með framkvæmd laga og reglugerða
um nýtingu fiskveiðilögsögunnar verði í hönd-
um landhelgisgæzlunnar og lögregluyfirvalda
í viðkomandi byggðalögum, sbr. fyrri álykt-
anir Fiskiþinga.
Að lokum vill þingið benda á eftirfarandi
atriði:
1. að óhyggilegt sé að miða veiðiheimildir ein-
göngu við rúmlestatölu skipa eins og gert
hefur verið, heldur eigi að miða veitingu
veiðileyfa við tegund veiðarfæris, lengd
skips og hestaflatölu vélar.
2. að lokun stórra veiðisvæða fyrir botnvörpu-
veiðum, eins og gert var ráð fyrir i frum-
varpi landhelgislaganefndarinnar, hafi
388 — Æ GI R