Ægir - 15.11.1973, Blaðsíða 24
ur. Aftan við þilfarshús er tog-
vinda, som er aðskilin í tvær
togvindur (splitvinsje) af
gerðinni DIA8U. Á hvorri
vindu er ein togtromla, ein
hjálpartromla og einn spil-
koppur. Vindurnar hafa eitt
hraðastig. Togátak á miðja
togtromlu (750 mm) er 5,3 t.
við 83 m./mín vírahraða, (hvor
tromla). Víramagn á hvora
togtromlu er um 850 faðmar
af 314” vír.
Tvær grandaravindur eru
fremst á aðalþilfari, stjórn-
borðs- og bakborðsmegin, af
gerðinni DS MA8 með einni
tromlu. Togátak um 6 t. við
38 m/mín vírahraða.
Á hvalbaksþilfari er akker-
isvinda af gerðinni B 4. Kap-*
stan af gerðinni CA4, togátak
3 t. við 32 m/mín hraða er
staðsettur á togþilfari.
Gert er ráð fyrir að setja
flotvörpuvindu í skipið síðar.
Á deiligír framan á aðalvél
eru 4 G19 dælur fyrir lág-
þrýstar vindur. Snúningshraði
á dælum er 230 sn/mín miðað
við 360 sn/mín á aðalvél. Lóð-
rétt úttak á deih'gír er ætlað
fyrir dælu fyrir flotvörpu-t
vindu. Á hjálparvél, bakborðr<
megin, er varadæla fyrir lág-
þrýstar vindur af gorðinni AU
weiler SNH 660.
Togvindum og grandara-
vindum má stjórna frá brú og
við togvindu. Fjarstýring er
þó ekki frá brú á hjálpar-
tromlum á togvindum. Kúpl-
ingu fyrir dælur á aðalvél er
hægt að fjarstýra frá brú. í
stýrishúsi cr hægt að lesa af
átak á togvírum.
Vinnuþilfar:
Fiskilúga á efra þilfari er
vökvaknúin og opnast upp.
Vökvaknúið hlið lokar skut-
rennu eftir að pokinn hefur
verið innbyrtur og er hliðið
þannig útbúið að það gengur
lóðrétt niður í skutrennuna.
Stjórnun á þessum búnaði er
aftarlega á efra þilfari við
skutrennu.
Fiskmóttaka er ca. 25 m:i að
stærð. Við framenda fiskmót-
töku er blóðgunarborð, en þar
framan við 4 blóðgunar- og
þvottaker úr áli með vökvaút-
búnaði á botni keranna. Fram-
an við blóðgunarkerin eru að-
gerðarborð og frá aðgerðar-
borðum fer fiskurinn eftir
færiböndum að fiskþvottavél.
Úr þvottavélinni fer fiskurinn
beint niður um op á lestarlúgu.
Slógstokkur er framan við að-
gerðarborð og nær út að síð-
um, en eftir honum fer slógið
útbyrðis. Sérstök vökvaknúin
lifrardæla er til að dæla lifur
í lifrargeyma, sem staðsettir
eru aftast á neðra þilfari,
stjórnborðs- og bakborðsmeg-
in við skutrennu. Fisktegundir
sem ekki er gert að eru fluttar
með færibandi frá fiskmóttöku
að þvottavél. Loft á vinnuþil-
fari er einangrað með 100 mm
steinull og klætt með 11 mm
„Warkaus" plötum.
Rafknúinn blásari fyrir út-
sog, er á vinnuþilfari og eru
afköst hans um 3500 m3/klst.
Fiskilest:
Fiskilest er um 280 m3 að
stærð og gerð fyrir kassa. í
botni lestar er einangrað með
,,polyesterene“ - plötum, en þar
ofan á er steypa. Einangrun í
síðum er polyurethrm en í lofti
glerull. Klætt er með „War-
kaus“ - plötum og plöturnar
meðhöndlaðar með epoxymáln-
ingu.
Ein losunarlúga er á fiski-
lest, stærð 2500x2000 mm. Á
lúgu eru tvö op. í lofti lestar
er færiband til að flytja fisk-
Kælikerfi fyrir lest er frá
Kværner Brugs. Kælimiðill er
Freon 22. Kælileiðslur eru í
lofti lestar. Kæliþjappa er af
gerðinni V 54-6 og eru afköst
hennar 19.400 Kcal/klst. mið-
að við hitastig -r-10/-/ + 25°C.
Ibúðir:
Undir neðra þilfari í fram-
skipi eru fimm 2ja manna
klefar. Á neðra þilfari er mat-
salur, eldhús, matvælageymsla
(kæld), þrír 2ja manna klefar,
snyrting með salernum og
sturtuklefa. Aftan við vistar-
verur á neðra þilfari, þ. e.
fremst á vinnuþilfari, er
þvottaherbergi með fataskáp-
um. Til hliðar við það er sal-
erni og geymsla.
Á efra þilfari er íbúð skip-
stjóra með eigin snyrtingu og
þrír eins-manns klefar fyrir
yfirmenn. Auk þess snyrting
með salerni og sturtuklefa.
Síður, útþil og loft í vistar-
verum er einangrað með 75
mm steinull. Klæðning á
veggjum og lofti er með plast-
húðuðum spónaplötum.
Upphitun í vistarverum er
frá olíukynntri miðstöð. Loft-
ræsting fyrir vistarverur er
með rafknúnum blásara, af-
köst 6000 m3/klst. í loftrás-
inni er hitaelement.
Brú:
Helstu tæki í stýrishúsi eru:
Ratsjár: 2 stk. Decca RM 916,
60 sml.
Miðunarstöð: Taiyo TD-A 130.
Loran: Mieco 6811.
Gyroáttaviti: Anschutz, gerð
Standard IV.
Sjálfstýring: Anschútz.
Framhald á bls. 402.
404 — Æ G I R