Ægir - 15.11.1973, Page 18
1. Dregið mun úr fjölda
breskra togara, sem veiða í
ís og sækja á svæðið, þann-
ig að 15 af stærstu togur-
unum og 15 aðrir togarar,
miðað við upplýsingar um
fjölda skipa að veiðum árið
1971, séu útilokaðar, og
verði því í togaraflotanum
eigi fleiri en 68 skip yfir
180 fet að lengd og 71 skip
minna en 180 fet, enda
stundi engir frystitogarar
eða verksmiðjuskip veiðar á
svæðinu.
2. Breskir togarar munu ekki
stunda veiðar á eftirtöldum
friðunarsvæðum á þeim
tímum, sem hér segir:
I) Fyrir Norðvesturlandi allt
árið á svæði, sem afmark-
ast af línu milli eftirtalinna
staða:
a) 66°57' n.br. 23°36' v.lg.
b) 67°01' n.br. 22°24' v.lg.
og línu, sem dregin er í
340° frá stað a) og 22°24'
vestur lengdar.
II) Fyrir Suðurlandi á tíma-
bilinu 20. mars til 20. apríl
á svæði, sem afmarkast af
línum milli eftirtalinna
staða:
a) 63°32' n.br. 21°25' v.lg.
b) 63°00' n.br. 21°25' v.lg.
c) 63°00' n.br. 22°00' v.lg.
d) 63°32' n.br. 22°00' v.lg.
III) Fyrir Norðausturlandi á
tímabilinu 1. apríl til 1.
júní á svæði, sem af-
markast af 16°11'8 vest-
lægri lengd og línu, sem
dregin er 045° frá Langa-
nesi (66°27'7 n.br. 14°31'
9 v.lg).
3. Breskir togarar munu ekki
stunda veiðar á eftirtöldum
bátasvæðum:
I) Fyrir Vestfjörðum á
svæði, sem afmarkast af
línu, sem dregin er 20
sjómílur utan við grunn-
línu norðan 65°30' norð-
lægrar breiddar og vestan
22°24'vestlægrar lengdar.
II) Fyrir Austfjörðum á
svæði, sem afmarkast af
línu, sem dregin er 20 sjó-
mílur utan við grunnlínu
norðan 64°44'5 norðlægr-
ar breiddar og sunnan
línu, sem dregin er 045°
frá Bjarnarey (65°47'1 n.
br. 14°18'2 v. lg.).
III) Fyrir Norðurlandi á
svæði, sem afmarkast af
línu milli eftirtalinna
staða
a) 66°39'7 n.br. 22°24'5 v.lg.
b) 66°23'8 n.br. 18°50'0 v.lg.
4. Breskir togarar munu ekki
stunda veiðar á eftirtöldum
svæðum á þeim tímum, sem
hér segir:
A) Fyrir Vestfjörðum á
svæði, sem afmarkast af
22° 24' vestlægri lengd og
65°30' norðlægri breidd.
Lokað september — októ-
ber.
B) Fyrir Suðvesturlandi á
svæði, sem afmarkast af
65°30' norðlægri breidd og
20°30' vestlægri lengd.
Lokað nóvember — des-
ember.
C) Fyrir Suðurlandi á svæði,
sem afmarkast af 20°30'
og 14°30' vestlægri lengd.
Lokað maí — júní.
D) Fyrir Suðausturlandi á
svæði, sem afmarkast af
14° 30' vestlægri lengd og
línu, sem dregin er 045°
frá Bjarnarey (65°47'1 n.
br. 14°18'2 v. lg.). Lokað
janúar — febrúar.
E) Fyrir Norðausturlandi á
svæði, afmörkuðu af línu,
sem dregin er í 045° frá
Bjarnarey og 16°11'8 vest-
lægri lengd. Lokað júlí —
ágúst.
F) Fyrir Norðurlandi á svæði,
sem afmarkast af 16°11',8
og 22°24' vestur lengd.
Lokað mars — apríl.
5. Tilhögun sú, sem fram er
sett í töluliðum 2—4 hér að
ofan, er sýnd á meðfylgj'
andi korti.
6. Aðilar koma sér saman um
lista yfir skip, sem veiðar
mega stunda samkvæmt
bráðabirgðasamkomulagi
þessu. Ríkisstjórn íslands
mun ekki hindra veiðar
þessara skipa umhverfis
Island, meðan þau fara
eftir ákvæðum bráða-
birgðasamkomulagsins. Se
skip staðið að veiðum 1
bága við samkomulagið,
getur íslenskt varðskip
stöðvað það, en skal kveðja
til það aðstoðarskip breskt.
sem næst er, til að sann-
reyna málsatvik. Togari,
sem rofið hefur samkomu-
lagið, verður strikaður út
af listanum.
7. Samkomulag þetta gildir 1
tvö ár frá undirritun þess,
og hefur brottfall þess ekki
áhrif á lagaskoðanir aðila
varðandi efnisatriði deil-
unnar.
Ef ríkisstjórn Bretlands
fellst á ofangreint, leyfi ég
mér að leggja til, að þessi orð-
sending og staðfesting yðar
398 — Æ G I R