Ægir - 15.11.1973, Síða 23
NÝ FISKISKIP
Dagstjarnan KE 9
14. nóvember bættist nýr
skuttogari í flota Keflvíkinga.
Skuttogari þessi, sem hlaut
nafnið Dagstjarnan KE 9. er
eign Sjöstjörnunnar h.f.,Kefla-
vík, og er byggður hjá A/S
Storviks Mek. Verksted Krist-
iansand, nýbygging no. 53.
Skuttogarinn er af svonefndri
„R-155 A“ gerð, en „Storviks"
hefur byggt marga skuttogara
af þeirri gerð. Þess má geta
að skuttogarar þeir sem Stál-
vík h.f. byggir eru af þessari
gerð.
Almenn lýsing:
Skipið er byggt skv. reglum
Det Norske Veritas og flokkað
+ 1A1, Stern Trawler, ICE C,
+MV. Skipið er skuttogari
með tveimur þilförum stafna
á milli og skutrennu upp á efra
þilfar.
Undir neðra þilfari er skip-
inu skipt með 4 vatnsþéttum
þverskipsþilum í eftirtalin
rúm, talið framan frá: Stafn-
hylki fyrir sjóballest; íbúðir,
en undir þeim eru botngeymar
fyrir brennsluolíu; fiskilest, en
undir henni eru botngeymar
fyrir brennsluolíu; vélarúm og
skutgeymar aftast fyrir fersk-
vatn.
Fremst á neðra þilfari er
geymsla og keðjukassar, en
þar fyrir aftan íbúðir. Aftan
við íbúðir er vinnuþilfar, fisk-
móttaka og stýrisvélarrúm. T'l
hliðar við fiskmóttöku og stýr-
isvélarrúm, út við síður, eru
geymslur fyrir veiðafæri og
ýmsan búnað.
Framarlega á efra þilfari er
þilfarshús, en til hliðar við þil-
farshús, stjórnborðs- og bak-
borðsmegin eru gangar, sem
eru opnir að aftan. í þilfars-
húsi eru íbúðir. Yfir þilfars-
húsi og göngum er þilfar
(hvalbaksþilfar), sem nær
aftur fyrir afturgafl þilfirs-
húss. Aftan við þilfarshús er
togþilfarið. Aftarlega á hval-
baksþilfari er brú (stýrishús)
skipsins.
Vélabúnaður:
Aðalvél skipsins er MAK,
gerð 8M 451 AK, 1500 hö. við
375 sn./mín. Vélin tengist
gegnum kúplingu skiptiskrúfu-
búnaði af gerðinni Hjelset 4
RKT/60. Skrúfa skipsins er
3ja blaða úr ryðfríu stáli,
þvermál 2100 mm. Utan um
skrúfu er skrúfuhringur.
Framan á aðalvélinni er deili-
gír fyrir vindudælur af gerð-
inni Framo WH 5V með 4
lárétt og 1 lóðrétt úttak.
Hjálparvélar eru tvær Mer-
cedes Benz, gerð OM 355, 160
hö. við 1500 sn./mín. Hvor vél
knýr Stamford rafal, 124 KVA,
3x230 V, 50 rið. Við aðra
hjálparvélina er varadæla fyr-
ir vindukerfi skipsins.
Tvær Westfalia skilvindur
eru fyrir smurolíu- og
brennsluolíukerfið. Á aðalvél
er ábyggð ræsiloftþjappa, en
auk þess er rafknúin ræsiloft-
þjappa af gerðinni Hatlapa
W-35, afköst 34 m-Vklst. móti
30 ato. Fyrir vélarúm og loft-
notkun véla eru tveir rafknún-
ir blásarar, afköst hvors blás-
ara er 9000 mVklst. Hydrofor-
kerfi, bæði sjó- og ferskvatns-,
er frá Bryne Mek. Verksted.
Stærð geyma er 200 lítrar. Til
framleiðslu á ferskvatni úr
sjó er ferskvatnseimir frá
Mersher Kastrup, BV-32, af-
köst 1-1,5 t. á sólarhring.
Fyrir upphitun er olíukynntur
ketill frá Nordic. Botngeymar
hafa „centralt" pælikerfi.
Stýrisvél er rafstýrð vökva-
knúin frá Tenfjord, gerð 1-155
-2ESG.
Vindubúnaður:
Vindubúnaður skipsins er
frá A/S Hydraulik Brattvnag
og er vökvaknúinn, lágþrýst-
Stærð skipsins .... 297 brl.
Mesta lengd .... 46.45 m.
Lengd milli lóðlína .... 40.00 m.
Breidd .... 9.00 m.
Dýpt að efra þilfari .... 6.50 m.
Dýpt að neðra þilfari .... 4.35 m.
Lestarrými 280.0 m3
Brennsluolíugeymar 124.0 m3
Ferskvatnsgeymar 47.5 m3
Ballastgeymir .... 21.5 m3
Lifrargeymar 9.5 m3
Hraði í reyslusiglingu 13,9 sml.
ÆGIR — 403