Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1974, Blaðsíða 14

Ægir - 01.03.1974, Blaðsíða 14
Utgerð og aflabrögð LOÐNUVERTÍÐIN 1974. í byrjun janúar hélt rannsóknarskipið Árni Friðriksson í rannsóknar- og loðnuleitarleið- angur austur fyrir land. Leiðangursstjóri var Hjálmar Vilhjálmsson, fiskifræðingur. Fljót- lega urðu þeir varir við mikla loðnu norður og austur af Langanesi. Loðnugangan virtist heldur seinni á ferð en á s.l. ári, því fóru skip almennt ekki af stað fyrr en um miðjan janúar, en þó lögðu nokkur skip af stað nokkru fyrr. Hinn 17. jan. fékkst fyrsta loðnan á vertíð- inni um 50 sml. austur af Dalatanga, en það var mb. Súlan EA 300 frá Akureyri, er fékk þar 326 tonn, er skipið landaði á Eskifirði. Loðnan gekk hratt suður með landi og laug- ardaginn 19. jan. var vitað um 13 skip, er fengið höfðu afla samtals 4219 lestir. Vikan 20. jan. — 26. jan. Skipum fór nú ört fjölgandi á miðunum og fyrri part vikunnar var aðalveiðisvæði flotans í Reyðarfjarðardýpi og Berufjarðarál. Loðn- an virtist ganga hratt vestur eftir og seinni part vikunnar var loðnugangan komin vestur fyrir Vestrahorn, sem þá var aðalveiðisvæðið ásamt nokkru í Lónsdýpi. Laugardaginn 26. jan. var bezti veiðidagur vikunnar, en þá fengu 50 skip um 13.300 lestir 10—12 sml. austur af Hrollaugseyjum. Vikuaflinn nam samtals 47.158 lestum og þá var vitað um 62 skip, er fengið höfðu einhvern afla. Vikan 27. jan. — 2. febr. Fyrri part vikunnar var aðalveiðisvæði flot- ans um Hrollaugseyjar og var mikil loðna á svæðinu og seinni part vikunnar var fyrsta loðnugangan komin vestur undir Ingólfshöfða. Bátum fór ört fjölgandi á miðunum, bæði nótabátum og flottrollsbátum. Aldrei fyrr höfðu jafn margir bátar hug á að stunda loðnuveiðar með flottrolli og á þessari vertíð. M. a. var vitað um tvo togara, er gagngert var breytt með það í huga að stunda loðnuveiðar, en það voru togararnir bv. Sigurður RE 4, 987 brl. að stærð svo og togarinn Bylgjan RE 145 (ex Jón Þorláksson) 566 brl. að stærð. Bezti veiðidagur vikunnar var 1. febr. en þá fengu 62 skip samtals 16.990 lestir. Vikuaflinn nam samtals 54.575 lestum og þá var vitað um 93 skip. sem höfðu fengið afla á móti 52 skipum á sama tíma í fyrra. Afla- hæsta skipið í vikulokin var Guðmundur RE 29 með samtals 4.100 lestir. Vikan 3. febr. — 9. febr. Fyrri part vikunnar var aðalveiðisvæðið frá Dyrhólaey og vestur fyrir Vestmannaeyjar. Þó fengu mörg skip veiði austan Ingólfshöfða. Miklir löndunarerfiðleikar voru víðast hvar og lönduðu skip á flestum höfnum allt frá Vopnafirði suður og vestur um til Bolunga- víkur. Seinnipart vikunnar var aðalveiðisvæðið á svæðinu frá Grindavík og vestur og norðan Reykjaness. Vitað var um eitt skip, er fékk afla norðan Garðskaga. Segja má að i vikunni hafi loðna veiðst á öllu svæðinu frá Hrollaugseyjum til Faxaflóa. Bezti veiðidagur vikunnar var 5. febr., en þá fengu 73 skip samtals 17.500 lestir. í vikunni gáfu 5 loðnubræðslur á SV-landi út tilkynningu þess efnis, að hætt yrði allri loðnumóttöku kl. 24 sunnudaginn 10. febr. vegna yfirvofandi verkfalls þ. 19. febr. Allar þessar verksmiðjur voru með fullar þrær af loðnu. Vikuaflinn var samtals 70.016 lestir og vitað var um að 126 skip hefðu fengið afla. Afla- hæsta skipið í vikulokin var mb. Börkur NK 70 — ÆGIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.