Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.03.1974, Qupperneq 19

Ægir - 01.03.1974, Qupperneq 19
Aðalaflgjafar fyrir þessa saltfiskþurrkunarsamstæðu eru tveir; annars vegar raf- drifin loftþjappa, sem fram- leiðir þrýstiloft til að drífa ílutningskerfi samstæðunnar, °S hins vegar upphitunarkerfi, sem hitar upp það loft sem blásið er um þurrkklefann. Afl það sem loftblásarar þurfa er óverulegt. Aflþörf loftþjöppu og blásara er um 28 kw. Orkukerfi fyrir upp- hitun á lofti er olíukynt mið- stöð í samstæðu þeirri, sem sett var niður í Garðinum, en 1 tveimur fyrstu samstæðun- Um, sem fyrirtækið framleiddi, var rafmagnsupphitun. Mið- stöðin hitar upp vatn, sem leitt er i gegnum element staðsett í þurrkklefanum (blástursenda). Bæði miðstöð °S loftþjappa eru staðsett fjarri samstæðunni og sjálfu fiskverkunarhúsinu, þannig að ^uengunarhætta er ekki fyrir hendi. Útfærsla á loftblásturskerfi, le&a ,,kanala“, staðsetning á blásurum o. þ. h., getur verið með mismunandi hætti og geta þvi aðalmál samstæð- unnar verið breytileg. Afköst. ^að tekur hverja fiskgrind ea. 3y2 klst. (210 mín.) að fara eina hringferð, en mögu- m&t er að stilla ganghraðann. Fjöldi grinda er 405 (lxb - l-0xl.8m), þannig að á hálfr- ar mínútu fresti á sér stað flutningur á grind. Þetta er þá sá tími, sem er fyrir hendi til að taka grind með þurrkuðum saltfiski úr lyftusæti, tæma hann og fylla á ný með blaut- iski og renna grind inn í sætið aftur. Tveir menn vinna þetta Verk, þ. e. að tæma og fylla á ný, og miðað við að gang- hraði á grind í gegnum sam- stæðuna sé 3 y2 klst., eru vinnustundir við hverja þurrk- un um 7 klst. Þurrktíminn er að sjálfsögðu háður ástandi fisks, en er frá 20—30 klst. (um 20 klst. fyrir þorsk, 7/8 þurrkaður; lengri fyrir ufsa, harðþurrkaðan). Miðað við 25 stunda þurrktíma (klefi lokaður) fer fiskurinn ca. 7 hringferðir á þeim tíma. Magn það sem vélin tekur í einu er um 6.5 t af blautfiski, og ef reiknað er með að þurrk- tími sé 25 klst. og losunar- og hleðslutími sé 3r/2 klst. að meðaltali, eru afköst reiknuð á sólarhringsgrundvelli um 5.5 t. Arðsemi. Norska fiskimálastjórnin hefur framkvæmt arðsemisút- reikninga fyrir þessa saltfisk- þurrkunarsamstæðu og byggt þá á samanburðarrannsókn- um á þessari aðferð („auto- matisk“) og hins vegar á þeirri aðferð, sem þar hefur verið notuð til þessa („horde- torke“). Að sjálfsögðu eru þessir út- reikningar byggðir á norskum aðstæðum, en ekki er úr vegi að koma aðeins inn á niður- stöður þessara útreikninga. Ofangreindar samanburðar- rannsóknir eru byggðar á að þurrka eigi 950 tonn á árs- grundvelli og þurrkunin eigi að skila 7/8 þurrum fiski. Af- skriftartími samstæðunnar er 10 ár. Á mynd 3 (línurit) má lesa kostnað við framleiðslu á ein- hverju tilteknu magni af blautfiski eftir þeim tveimur aðferðum, sem rannsóknirnar eru byggðar á. Brotna línan gefur kostnað miðað við gömlu aðferðina, en heil- dregna línan gefur kostnaðinn með sjálfvirku aðferðinni. Eins og sjá má út frá línu- ritinu er dýrara að nota sjálfvirku aðferðina, ef magn það, sem þurrka á, er t. d. 2000 t. Við ca. 2750 t. magn af blautfiski skerast kostnaðarlínurnar, sem þýðir að sjálfvirka aðferðin hefur borgað sig miðað við þær for- sendur, sem gengið er út frá í útreikningum. Miðað við 950 Pramhald á bls. 80. Kostnad 1000 kr 1000 800 / 600 / 400 * 200 4* ^ 4 1000 2000 3000 3. mynd. Rástoff - forbruk tonn Æ GI R — 75

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.