Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 15.08.1974, Qupperneq 10

Ægir - 15.08.1974, Qupperneq 10
liggjandi svæða er ekki heyrðu undir áður- nefnd strandríki. Starfsemi RFS var að ýmsu leyti nýstárleg svo rík áherzla sem lögð var á hagnýtingu nýtízku tæknibúnaðar og að- ferða. Ég var ráðinn til RFS sem „Acoustic Expert“-sérfræðingur í bergmálstækjum — og mér var fyrst og fremst gert að vinna að þróun bættra tækniaðferða og sýna fram á hvaða möguleikar væru fólgnir í notkun full- komins tækjabúnaðar við fiskirannsóknir á vegum FAO. Þegar ég kom um borð í norska rannsóknarskipið, sem FAO leigði af Norð- mönnum til rannsókna við vesturströnd Afr- íku, höfðu magnrannsóknir staðið í nær tvö ár með fremur litlum árangri og menn orðnir vondaufir, sérstaklega með það, að takast mætti að framkvæma beinar raunmælingar á fiskmagni. Það reyndist mjög erfitt að magntúlka upplýsingar tækjanna með þekkt- um aðferðum (Bergensaðferðinni og amerísku aðferðinni). Bergenska aðferðin var ekki snið- in fyrir þessar aðstæður, sem þarna voru og það lá ekki fyrir, hvernig ætti að nota þá aðferð við mjög smáan fisk. Aðferðin hafði verið þróuð við allt önnur skilyrði en voru á þessum slóðum. Sama var að segja um amerísku aðferðina. Þröskuldurinn, sem þurfti að yfirstíga, var sá, að finna stuðul sem leyfði það að breyta tölugildi tækjanna í raun- hæft tölugildi til að ákveða svo eftir því fiskmagnið á þessum svæðum. Ég vil taka það fram að báðar ofangreindar aðferðir eru góðar við þær aðstæður, sem þær hafa þróazt við, en samkvæmt okkar reynslu hjá FAO koma þær sjaldan að nægum not- um á hinum ýmsu hafsvæðum og við breyttar aðstæður og ekki heldur við magnmælingar á smáfiski í fersku vatni. Það var því ekki um annað að ræða fyrir okkur hjá FAO, en reyna að finna upp nýja mælingaaðferð og að þvi beindist mitt starf. Persónulega var ég þeirrar skoðunar eftir að hafa kynnt mér rækilega þau fræði og að- ferðir sem fyrir lágu, að ýmsar þær stærðir, sem niotaðar voru í magnákvörðunar„módel“ fyrir tækin væru skilgreindar á ófullnægjandi hátt með tilliti til þeirrar nákvæmni, sem við urðum að mínum dómi að gera til slíkra magnmælinga eigi þær að teljast nægilega áreiðanlegar. Áhugi minn beindist því fljót- lega að „calibration" lausn er byggðist á til- raunamælingum þannig útfærðum að hægt væri að sniðganga fræðilegar flækjur og ,formúlera“ tækjastuðulinn með einfaldri jöfnu er eingöngu fæli í sér stærðir með til- tclulega vel þekktri nákvæmni. Lausnin, sem ég fyrst hafði aðstæður til að prófa í Marm- arahafinu var í raun og veru mjög einföld. Hún er í því fólgin, að við bárum saman þekkt fiskmagn við aflesninguna af tækjunum, sem nefnast Analog Echo Intergrator, en er nýtt og tiltölulega flókið rafeindatæki, sem er einskonar samlagningarvél fyrir hljóð- endurvörp og skilar svari sínu í formi línu- rits. Aflesningin er svo með sérstökum hætti tengd stærð og fjölda fiskanna er endur- vörpunum valda. Við útbjuggum okkur sérstakt fiskabúr, aðallega úr tveimur stálhringum (þvermál 1,5 m) og fínu nælonneti. Þessu búri komum við svo fyrir í miðju hljóðgeislans í um það bil 5 metra dýpt frá botnstykkinu. Frá búr- inú lá svo sveigjanleg plastpípa (þverm. 8 cm.) upp á skipsdekkið, þar sem hafður var fisktankur en í honum höfðum við lifandi fisk, sem veiddur var í nót. Ákveðnum fjölda og stærð fiska var síðan rennt með sjó gegn- um pípuna frá tanknum og niður í búrið, þannig að í því var nákvæmlega þekkt fisk- magn. Frumskilyrðið fyrir þessari tilrauna- aðferð, er að fiskurinn dreifi sér nokkurn veginn jafnt, innan rúmmáls búrsins. Dreif- ingin var könnuð og staðfest með tíðum köf- unum. 1 rauninni má segja að köfunarkunn- átta mín frá köfuninni hér heima úti á mið- unum hafi verið all-mikill þáttur í að leysa dæmið. Ég get nefnt sem dæmi um þetta, að meðan stóðu yfir tilraunirnar í Túnis, þa kafaði ég 50 sinnum niður til að fylgjast með fiskinum og bera saman það, sem ég sá með eigin augum við línurit tækjanna og það reyndist mér mjög lærdómsríkt. Þetta var sem sé bein mælingaaðferð. Það var ekki leng- ur um neina óþekkta stærð að ræða, og auðvelt var að reikna tækjastuðulinn eftir einfaldri formúlu. Við jukum svo smám saman fisk- magnið í búrinu og þéttum það einnig til að vita hvernig tækin mældu torfur. Það var einmitt mjög mikilvægt, þar sem uppi voru kenningar um það, að mikið tapaðist af hljóð- endurvörpum, ef fiskur væri í þéttum torfum, og stuðullinn, sem fundinn væri fyrir dreifðan fisk gilti því ekki fyrir torfufisk. Mér var því mikið í mun að finna hvort stuðullinn væri jafn breytilegur og menn héldu eða „konstant“, eins og ég taldi mig hafa ríka 226 — Æ GIR

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.