Ægir - 15.08.1974, Qupperneq 24
Fisksjá: Simrad CB 2.
Asdik: Simrad SK 3.
Netsjá: Simrad FB 2 með
EX sjálfrita og FI trál
vakt.
Örbylgjustöð: Nera.
Veðurkortamóttakari: Taiyo
TF-786.
I klefa loftskeytamanns eru
öll þau fjarskiptatæki, sem
krafizt er í skipum yfir 500
brl. Tækin eru frá Nera.
Skipstjóri á Guðsteini GK
er Svavar Benediktsson og 1.
vélstjóri er Ágúst Geirsson.
Framkvæmdastjóri útgerðar-
innar er Einar Sveinsson.
Aðalvík KE 95
4. júní s. 1. kiom 5. og síðasti
Spánartogarinn af minni gerð,
Aðalvík KE 95, til landsins.
Aðalvík KE er byggður hjá
sömu skipasmíðastöð og Jón
Vídalín ÁR, þ. e. Maritima de
Axpe í Bilbao, og er smíða-
númer 70. Skipið er eign Hrað-
frystihúss Keflavíkur h.f. —
Aðalvík KE og Jón Vídalín
eru einu skuttogararnir af
þessari gerð, sem byggðir eru
hjá sömu skipasmíðastöð, en
þrír fyrstu, Hólmanes SU, Ot-
ur GK og Sigluvík SI, voru
byggðir hver hjá sinni skipa-
smíðastöðinni.
Lýsing á Hólmanesi SU (6-
tbl.) gildir einnig fyrir þetta
skip og er allur véla- og tækja-
búnaður samsvarandi að gerð.
í Aðalvík KE 95 verður sett
asdik- og netsjártæki frá Fur-
uno, eins og fram kemur hér
að framan. (Sjá Jón Vídalín)-
Skipstjóri á Aðalvík KE er
Markús Guðmundsson og 1-
vélstjóri Andrés Ólafsson. —'
Framkvæmdastjóri útgerðar-
innar er Benedikt Jónsson.
Forstíðumyndin er af Aðal-
vik KE 95.
Fiskvinnsluskólanum
sagt upp
Fiskvinnsluskólanum var sagt upp 6. júlí,
en vegna sumarleyfa hefur dregist að skýra
frá uppsögninni í Ægi.
Útskrifaðir voru 23 fiskiðnaðarmenn og voru
það að þessu sinni einungis karlmenn, en
nokkrar stúlkur stunda þó nám í neðri bekkj-
um skólans. Þetta eru fyrstu fiskiðnaðarmenn-
irnir, sem skólinn útskrifar og flestir þeirra
halda sennilega áfram námi og verða fisk-
vinnslumeistarar, en það verða þeir að við-
bættu ársnámi. Þeir geta þá enn haldið áfram
í eitt ár og orðið fisktæknar. Alls voru nem-
endur fiskvinnsluskólans 51 síðastliðinn vetur,
eða réttara sagt síðastliðið ár, því að skólinn
starfar í önnum, á víxl bóklegum og verkleg-
um, sem skiptast niður á allt árið, (11 mánuði)
og nemendur eru í raun og veru við nám öll
árin, sem þeir eru í skólanum, þó að þeir sitji
þar ekki alltaf á skólabekkjunum. Fiskvinnslu-
skólinn tók til starfa haustið 1971 og var fyrst
til húsa að Skúlagötu 4 í húsakynnum Rann-
sóknastofnana sjávarútvegsins, en er nú í ný-
legu húsnæði að Trönuhrauni 8, Hafnarfirði.
Aðstaða til verklegrar kennslu er nú fenginn
hjá Bæjarútgerð Hafnarfjarðar og hefur þá
skipast vel til um húsnæðismál skólans. Fyrsta
haustið hófu 30 nemendur námið og voru 23
þeirra að ljúka því, sem fyrr segir, og einn til
viðbótar lýkur því í haust, en hann forfallaðist
vegna veikinda. Skólastjóri, Sigurður B.. Har-
aldsson, gat þess í skólaslitaræðu sinni, að
náðst hefði samkomulag við Fiskmat ríkisins
um starfsréttindi nemenda varðandi fiskmat,
en það olli nokkrum deilum í fyrra, hvermg'
þeim málum skyldi hagað. Meginatriði sam-
komulagsins eru þau, að nemendum gefst kost-
ur á að öðlast fiskmatsréttindi löggilt, eftir 6
mánaða samfellt starf við mat á fiski.
Svo virðist af viðtölum við nemendur, sem
útskrifuðust, að þá þurfi ekki að skorta at-
vinnu við sitt hæfi, þó að enn séu starfsréttindi
þeirra mjög óljós og enn vanti um þau 1 'ÓS-
Það hlaut að verða þörf fyrir fólk með mennt-
un fiskiðnaðarmanna til verkstjómar °S
ýmissar vinnu í fiskvinnslunni, sem sérþjálf"
að fólk þarf til. Nauðsynlegt er þó að vinda
bráðan bug að því að ákveða starfsréttindi
nemenda með lögum. Það örvar ekki aðsóknina
að skólanum ef nemendur vita ekki hvaðn
starfsréttindi námið veitir þeim.
240 — Æ GIR