Ægir

Volume

Ægir - 15.05.1975, Page 18

Ægir - 15.05.1975, Page 18
6. gr. Öll lán úr Fiskveiðasjóði, veitt og afgreidd eftir 1. janúar 1972, önnur en bein endurlán og gengisjöfnunarlán, skulu vera háð breyt- ingum á gengi íslenskrar krónu eða breyting- um á gengi hvers þess gjaldeyris, sem Fisk- veiðasjóður skuldar í (sbr. heimild í 16. gr. 1. nr. 75/1966). Séu lánin ekki beinlínis í er- lendri mynt, skal tilgreint i veðskuldabréfi hve hár hundraðshluti eftirstöðva lánsins á hverjum tíma sé háður breytingum á gengi. Framkvæmd þessara ákvæða skal vera á þann veg, að breytist gengi íslenskrar krónu, eða breytist gengi e-inhvers þess gjaldeyris, sem Fiskveiðasjóður skuldar í, skal Fiskveiða- sjóður deila þeirri fjárhæð, sem erlendar skuldir sjóðsins, aðrar en þær sem hafa verið endurlánaðar beint með sömu kjörum, hækka eða lækka um í krónutölu vegna gengisbreyt- ingarinnar, niður á þau lán úr sjóönum, er háð eru breytingum á gengi í réttu hlutfalli við þann hluta ógreiddra eftirstöðva viðkom- andi lána, sem háður er slíkum breytingum, þannig, að eftirstöðvar þessara lána hækki eða lækki þá þegar samtals í krónutölu um sömu fjárhæð og erlendar skuldir Fiskveiða- sjóðs, aðrar en þær, sem endurlánaðar hafa verið beint með sömu kjörum, hækka eða lækka um. Við niðurdeilingu af þessu tagi skal eingöngu miðað við útborgaðan hluta lána. Hækki eða lækki erlendar skuldir Fisk- veiðasjóðs af þessum sökum svo verulega í krónutölu, að ekki rúmist innan þeirra marka, er viðkomandi veðskuldabréf sjálf setja, ber sjóðurinn sjálfur það tap eða fær þann hagnað, sem á milli ber. Við alla túlkun á orðalagi þessarar greinar skal það vera höf- uðviðmiðun, að Fiskveiðasjóður verði skað- laus af öllum gengisbreytingum. 7. gr. Opnaður hefur verið nýr lánaflokkur til endurlána á vísitölutryggðum lánum. Öllum lántakendum, sem lioforð fá eða hafa fengið um lán að fjárhæð kr. 500.000 eða meira, sem falla undir lánaflokka, sem tald- ir eru í 2. gr., aðra en þá, sem taldir eru í 9., 10. og 11. tölulið A-liðar, skal skylt að taka 10 hundraðshluta lofaðrar fjárhæðar að láni úr þessum flokki. Lán úr þessum flokki eru alltaf veitt sam- hliða öðrum lánum og verða til jafn langs tíma og þau, þó aldrei til lengri tíma en 12 ára. Eigi lántaki rétt á láni til lengri tíma en 12 ára skal lánið úr þessum flokki vera til 12 ára„ en afborganir af samhliða láninu vera lægri fyrstu 12 árin, þannig að heildar lánsfjárhæðin endurgreiðist með jöfnum af- borgunum á heildarlánstímanum miðað við upphaflegar fjárhæðir lánanna. Lán úr þessum flokki skal endurgreiða með jöfnum árlegum afborgunum og er gjalddagi þeirra 20. júlí ár hvert. Af laununum skal greiða í vexti 6,25% a ári og greiðast vextirnir eftir á, á sömu gjald- dögum og afborganir í fyrsta sinn næsta 20- júlí eftir að lán er afgreitt. Til viðbótar hverri einstakri greiðslu vaxta og afborgunar af lánum úr þessum flokki skal lántakandi greiða á hverjum gjalddaga, eða greiðsludegi, sé hann síðar, verðuppbót af vaxta- og afborgunargreiöslu lánsins, er mið' ast við hækkun byggingarvísitölu frá lántöku- degi til greiðsludags. iLækki byggingarvísital- an niður fyrir þann stigafjölda er gilti við af- greiðslu lánsins, skulu greiðslur vaxta og af' borgana fara fram á nafnverði. Miðað er við byggingarvísitölu þá, er kveðið er á um í 1 oS' um nr. 25/1957 og síðari breytingar, er a henni kunna að verða gerðar. Heimilt er að greiða aukaafborgun af lan' um úr þessum flokki á gjalddögum lánannai enda sé tilkynnt um slíka ákvörðun eigi síðat en 5. júní ár hvert. Af slíkum aukaafborgun- um greiðist sama vísitöluálag og greiða bei af hinum samningsbundnu endurgreiðslum lánanna. Af lánunum skal greiða við afgreiðslu 1% í lántökugjald. Dráttarvextir skulu vera 1% fyrir hvern mánuð eða brot úr mánuði. Öllum þeim, er lán fá að fjárhæð kr. 500.0 eða meira, sem falla undir lánaflokka, sern taldir eru í B. lið 2. gr. reglugerðarinnar, ska skylt að taka 25 hundraðshluta lofaðrar fjár hæðar að láni úr þessum flokki. Greiði lántakendur aukaafborgun af lánutn úr þessum flokki ber þeim jafnframt a greiða hlutfallslega sömu aukaafborgun a þeim lánum, sem samhliða voru veitt úr o um lánaflokkum. Gjalddaga, vexti, dráttarvexti og lántök gjöld af lánum úr þessum lánaflokki ákve stjórn Fiskveiðasjóðs hverju sinni og fer 1 þau atriði eftir þeim vísitölutryggðu lánu 160 — Æ G I R

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.