Ægir - 15.05.1975, Qupperneq 18
6. gr.
Öll lán úr Fiskveiðasjóði, veitt og afgreidd
eftir 1. janúar 1972, önnur en bein endurlán
og gengisjöfnunarlán, skulu vera háð breyt-
ingum á gengi íslenskrar krónu eða breyting-
um á gengi hvers þess gjaldeyris, sem Fisk-
veiðasjóður skuldar í (sbr. heimild í 16. gr.
1. nr. 75/1966). Séu lánin ekki beinlínis í er-
lendri mynt, skal tilgreint i veðskuldabréfi
hve hár hundraðshluti eftirstöðva lánsins á
hverjum tíma sé háður breytingum á gengi.
Framkvæmd þessara ákvæða skal vera á þann
veg, að breytist gengi íslenskrar krónu, eða
breytist gengi e-inhvers þess gjaldeyris, sem
Fiskveiðasjóður skuldar í, skal Fiskveiða-
sjóður deila þeirri fjárhæð, sem erlendar
skuldir sjóðsins, aðrar en þær sem hafa verið
endurlánaðar beint með sömu kjörum, hækka
eða lækka um í krónutölu vegna gengisbreyt-
ingarinnar, niður á þau lán úr sjóönum, er
háð eru breytingum á gengi í réttu hlutfalli
við þann hluta ógreiddra eftirstöðva viðkom-
andi lána, sem háður er slíkum breytingum,
þannig, að eftirstöðvar þessara lána hækki
eða lækki þá þegar samtals í krónutölu um
sömu fjárhæð og erlendar skuldir Fiskveiða-
sjóðs, aðrar en þær, sem endurlánaðar hafa
verið beint með sömu kjörum, hækka eða
lækka um. Við niðurdeilingu af þessu tagi
skal eingöngu miðað við útborgaðan hluta
lána. Hækki eða lækki erlendar skuldir Fisk-
veiðasjóðs af þessum sökum svo verulega í
krónutölu, að ekki rúmist innan þeirra
marka, er viðkomandi veðskuldabréf sjálf
setja, ber sjóðurinn sjálfur það tap eða fær
þann hagnað, sem á milli ber. Við alla túlkun á
orðalagi þessarar greinar skal það vera höf-
uðviðmiðun, að Fiskveiðasjóður verði skað-
laus af öllum gengisbreytingum.
7. gr.
Opnaður hefur verið nýr lánaflokkur til
endurlána á vísitölutryggðum lánum.
Öllum lántakendum, sem lioforð fá eða hafa
fengið um lán að fjárhæð kr. 500.000 eða
meira, sem falla undir lánaflokka, sem tald-
ir eru í 2. gr., aðra en þá, sem taldir eru í 9.,
10. og 11. tölulið A-liðar, skal skylt að taka 10
hundraðshluta lofaðrar fjárhæðar að láni úr
þessum flokki.
Lán úr þessum flokki eru alltaf veitt sam-
hliða öðrum lánum og verða til jafn langs
tíma og þau, þó aldrei til lengri tíma en 12
ára. Eigi lántaki rétt á láni til lengri tíma en
12 ára skal lánið úr þessum flokki vera til
12 ára„ en afborganir af samhliða láninu
vera lægri fyrstu 12 árin, þannig að heildar
lánsfjárhæðin endurgreiðist með jöfnum af-
borgunum á heildarlánstímanum miðað við
upphaflegar fjárhæðir lánanna.
Lán úr þessum flokki skal endurgreiða með
jöfnum árlegum afborgunum og er gjalddagi
þeirra 20. júlí ár hvert.
Af laununum skal greiða í vexti 6,25% a
ári og greiðast vextirnir eftir á, á sömu gjald-
dögum og afborganir í fyrsta sinn næsta 20-
júlí eftir að lán er afgreitt.
Til viðbótar hverri einstakri greiðslu vaxta
og afborgunar af lánum úr þessum flokki skal
lántakandi greiða á hverjum gjalddaga, eða
greiðsludegi, sé hann síðar, verðuppbót af
vaxta- og afborgunargreiöslu lánsins, er mið'
ast við hækkun byggingarvísitölu frá lántöku-
degi til greiðsludags. iLækki byggingarvísital-
an niður fyrir þann stigafjölda er gilti við af-
greiðslu lánsins, skulu greiðslur vaxta og af'
borgana fara fram á nafnverði. Miðað er við
byggingarvísitölu þá, er kveðið er á um í 1 oS'
um nr. 25/1957 og síðari breytingar, er a
henni kunna að verða gerðar.
Heimilt er að greiða aukaafborgun af lan'
um úr þessum flokki á gjalddögum lánannai
enda sé tilkynnt um slíka ákvörðun eigi síðat
en 5. júní ár hvert. Af slíkum aukaafborgun-
um greiðist sama vísitöluálag og greiða bei
af hinum samningsbundnu endurgreiðslum
lánanna.
Af lánunum skal greiða við afgreiðslu 1%
í lántökugjald.
Dráttarvextir skulu vera 1% fyrir hvern
mánuð eða brot úr mánuði.
Öllum þeim, er lán fá að fjárhæð kr. 500.0
eða meira, sem falla undir lánaflokka, sern
taldir eru í B. lið 2. gr. reglugerðarinnar, ska
skylt að taka 25 hundraðshluta lofaðrar fjár
hæðar að láni úr þessum flokki.
Greiði lántakendur aukaafborgun af lánutn
úr þessum flokki ber þeim jafnframt a
greiða hlutfallslega sömu aukaafborgun a
þeim lánum, sem samhliða voru veitt úr o
um lánaflokkum.
Gjalddaga, vexti, dráttarvexti og lántök
gjöld af lánum úr þessum lánaflokki ákve
stjórn Fiskveiðasjóðs hverju sinni og fer 1
þau atriði eftir þeim vísitölutryggðu lánu
160 — Æ G I R