Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.06.1975, Qupperneq 10

Ægir - 01.06.1975, Qupperneq 10
um meira en helming frá áætluðu verði Verð- lagsráðs sjávarútvegsins hinn 20. janúar 1974. Til þess hefðu þurft miklu meiri verðhækkun á loðnulýsinu en varð, sökum þess að lýsis- nýtinging við vinnslu loðnunnar er að meðal- tali um 5%, en mjölnýtingin um 15%. Þegar komið var fram yfir áramótin 1974/ 1975 reyndist ekki lengur unnt að selja loðnu- lýsi með fyrirvara um veiði og verðið á lýs- inu fór ört lækkandi. Einnig lækkaði verðið á jurtafeiti óðfluga. Helzti kaupandinn að lýsi frá íslandi í um það bil aldarfjórðung, G.S. Kievit B.V. í Rott- erdam, lenti í greiðsluörðugleikum vegna hins gífurlega verðfalls, sem varð á hverskonar lýsi og jurtáfeiti, en hann átti mjög mikið magn af þessum vörum óselt. Keyrði um þver- bak, hvað lýsi snerti, 11. apríl s.l., þegar fyrir- tæki hans leitaði til yfirvalda í Rotterdam og bað um gjaldfrest á skuldum. Hafa yfirvöldin þar auglýst innköllun á skuldum firmans. Þegar það hefur verið gert og eignir kannað- ar, greiða kröfuhafar atkvæði um, hvort veita skuli greiðslufrest. Tekur þessi könnun tals- verðan tíma. Kievit keypti mjög mikið af síldarlýsi frá íslandi á síldarárunum, en þá varð framleiðsla síldarlýsis mest árið 1966, um 120.000 tonn. Hann hefur einnig keypt hvallýsi og síðustu árin hefur hann verið aðalkaupandi loðnulýsis- Hafa viðskipti hans við íslendinga reynzt vel þar til í ár, að verðfall lýsisins og jurtafeit- innar hafa valdið því, að honum hefur ekki reynzt unnt að standa við kaupsamninga nema að nokkru leyti, og er það alvarlegt áfall fyrir suma íslenzka framleiðendur. Hefur lýsi frá Perú, Japan og fleiri löndum nú verið selt í Rotterdam á $300.00 tonnið cif og virðist enn vera lækkandi. Reykjavík, 28. apríl 1975. Sveinn Benediktsson: Söluhorfur á fiskmjöli og lýsi enn ískyggilegar Úr dreifibréfi FlF nr. 5/1975 5. júní 1975 Olíukreppan, sem kornst í algleyming, er styrjöld braust enn einu sinni út milli Araba- ríkjanna og Ísraelsríkis haustið 1973, hefur svo sem alkunnugt er leitt til orkuskorts, vax- andi dýrtíðar og verðbólgu um allan heim. Landbúnaður flestra þjóða hefur orðið fyr- ir þungum búsifjum af þessum sökum. Mjög hefur dregið úr eftirspurn á jurtafeiti, öðru feitmeti og mjöli úr jurtaríkinu. Verð á lýsi haldur áfram að lækka, svo og á fiskmjöli. I upplýsingum frá Noregi 29. maí s.l., sem fara hér á eftir í lauslegri þýðingu, segir: „Lítið er að frétta af mörkuðum fyrir eggjahvítu (protein) sem stendur. Framboð er ekki mikið og kaupendur halda að sér hönd- um. Öllum upplýsingum ber saman um, að yfirfljótanlegar birgðir af proteini muni verða fyrir hendi á næstu mánuðum og marg- ir kaupendur virðast óttast frekara verðfall. Þeir vitna til hinnar góðu uppskeru í Brasilíu, sem kunni að leiða til lækkunar á verðinu fyrr en varir. Þá benda þeir á hinar góðu horfur um uppskeru sojabauna í Bandaríkjunum á þessu ári, einnig vitna þeir til góðs afla hjá Perúmönnum og horfa á vaxandi framboði fiskmjöls frá þeim. Hið eina sem gæti vegið á móti þessum atriðum er, að neysla á fóðurvörum er áfWr farin að vaxa. Virðast vera nokkur merki þesS að svo sé, en þó hefur ekki tekist að gagna til endanlegrar staðfestingar á því. Að því er virðist hefur Perúmönnum aðeins tekist að selja brot af því, sem þeir munu hafa óskað að selja til Austur-Evrópulanda- Meginhlutann virðast þeir hafa selt per t°nn á US$ 235 cost and freight Rotterdam/Hana borg (US$ 3,61 pr. proteineiningu) með a skipun í júní—desember 1975. LausafréH1 herma að síðasta sala þeirra hafi verið á H 220 c and f eða US$ 3,38 pr. proteineining^; Perúmenn reyna að finna markaði ym ^ fyrir fiskmjölsframleiðslu sína. Vestur-Þý/k land hefur verið mesti markaður fyrir ry mjöl, en þar er verðið til fyrirstöðu. V.-Þí0 ^ verjar hafa látið í ljós áhuga á kaupum miklu magni á verði nálægt US$ 205 ^ tonnið c and f, Hamborg, sem svarar til Framhald á bls. 168 — Æ GIR

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.