Ægir - 01.06.1975, Síða 20
ar að reynast óstöðugra og óhagstæðara en
ráð var fyrir gert og söluhorfur hafa versnað
í maí. Meðalverð á stórfiski er líklega um 8.3%
lægra en í fyrra og um 20% lægra á smáfiski.
Um 25% af framleiðslu okkar á blautverkuð-
um saltfiski var selt til Spánar á síðastliðnu
ári eða um 8000 lestir. Við höfum aflað okk-
ur sölusamninga við Spánverja nú uppá 6000
lestir, en innflutningurinn er háður leyfi
stjórnvalda. Spánverjar hafa nú gripið til þess
ráðs að lækka sinn eigin saltfisk um 15 pes-
eta pr. kg, sem gerir samkeppnisaðstöðu inn-
flutts saltfisks verri auk þess, sem þeir hafa
hækkað innflutningstoll úr 1.5% í fyrra í 7%
nú og auk þessa tekið upp innflutningsgjald,
sem nemur 5 pesetum á kg. Þetta allt til sam-
ans, tollahækkun, innflutningsgjaldið og verð-
lækkun á þeirra eigin framleiðslu gerir frek-
ari saltfisksölu til Spánar fyrir viðunanlegt
verð mjög tvísýna að sögn talsmanna S.Í.F.
Nokkrum dögum eftir að forystumenn S.Í.F.
héldu þennan fund með blaðamönnum, skelltu
Spánverjar fyrirvaralaust á innflutningsbanni
á saltfisk og hafði það ekki gerzt síðan 1968,
eftir því sem Tömas Þorvaldsson sagði. Þeg-
ar þessi óvænta fregn barst (15. maí) var 1400
lesta farmur á leiðinni til Spánar og ekki
fyrir hendi innflutningsleyfi nema fyrir helm-
ing þess magns. Hitt fer þá í fríhöfn á Spáni
og bíður leyfis. Sá háttur hefur verið hafður
á að sótt hefur verið um leyfi fyrir hverjum
einstökum farmi og sama hátt átti að hafa á
nú. Af þessum sölusamningum uppá 6000
lestir var eftir að fá leyfi fyrir 4.500 lestum,
þegar samið var. 1500 lesta leyfið dugði fyrir
fyrstu sendingunni og hálfum þeim farmi
sem að ofan getur.
Á ferð sinni á OECD-fundinn nú seinast í
maí ræddi Ólafur Jóhannesson viðskiptaráð-
herra við fulltrúa Spánar um þessar óvæntu
innflutningstakmarkanir log segir hann í
blaðaviðtali við heimkomuna, að fulltrúinn
hafi haft góð orð um, að þessum takmörkun-
um yrði aflétt.
Það er vonandi að svo verði, því að nóg
er annað til að angra menn þessa dagana.
Fiskverð...
Framhald af bls. 171
eftirfarandi lágmarksverð á hörpudiski frá
1. júní til 31. ágúst 1975:
Hörpudiskur í vinnsluhæfu ástandi, 7 cm á
hæð og yfir, hvert kg, kr. 16.00.
Verðið er miðað við, að seljendur skilí
hörpudiski á flutningstæki við hlið veiðiskips.
og skal hörpudiskurinn veginn á bílvog af lög'
giltum vigtarmanni á vinnslustað og þess gætt,
að sjór fylgi ekki með.
Verðið miðast við gæða- og stærðarmat
Fiskmats ríkisins og fari gæða- og stærðar-
flokkun fram á vinnslustað.
Reykjavík, 23. maí 1975.
Verðlagsráð sjávarútvegsinS.
Söluhorfur á fiskmjöli...
Framhald af bls. 168
3,15 pr. proteineiningu, með tafarlausri af-
skipun, en að þessu sinni hafa Perúmenn ekki
viljað selja á þessu verði enn sem komið er.
Fiskmjöl frá Afríku, sem geymt hefur ver-
ið í fljótaprömmum í Hamborg, hefur nýlega
verið selt á US$ 3,31 pr. proteineiningu til a^'
hendingar strax. Proteininnihald er 64%.
Norskt fiskmjöl er ekki boðið til sölu a
sinni. Birgðir eru takmarkaðar vegna hins le-
lega loðnuafla á síðustu vertíð (nam 485 þaa-
tonnum á móti um 625 þús. tonnum í fyrra)-
Kaupendur eru áhugalausir um kaup, nema
þeir eigi völ á vildarkjörum. ..
Norsildmel hefur selt nokkurt magn ^1
Bretlands til afskipunar strax á £ 1,67 (US-l’
3,83)
us$
Síðustu sölur héðan á loðnumjöli eru
3,50 fyrir einingu af eggjahvítu í tonni cif e
tilsvarandi verð í sterlingspundum, með a
hendingu í júní eða júlí. Eftir því sem
næst
verður komist, eru nú óseldar birgðir af ltoðnu
mjöli innan við eitt þúsund tonn og einn1.^
hverfandi litlar óseldar birgðir af þorskmj0
og öðru fiskmjöli í landinu. _
Lýsisverð á erlendum mörkuðum er nu 1
ið niður í 270—280 dollara tonnið cif, en s'
haust komst verðið upp í um 600 dollara ton ,
ið á þeim birgðum, sem fyrir hendi vom
Rotterdam/Hamborg. . g
Sjá nánar um verðlagið á loðnumjoli
loðnulýsi í dreifibréfi FlF 29. apríl s.l-, 1
4/1975, sem birt er hér að framan.
Reykjavík, 3. júní 1975.
178 — Æ GIR