Ægir - 01.07.1986, Page 16
þessum markaði, en hinir sem
verr eru settir heltast úr lestinni.
Ég tel einsætt, að íslendingar
muni aldrei ná umtalsverðri fót-
festu á erlendum laxamörkuðum
þar til þeir geta boðið fram mikið
magn af fyrsta flokks frystum haf-
beitarlaxi, enda verdi þá verð
hans hagstæðara en á öðrum laxi.
Vegna yfirburðaaðstöðu af nátt-
úrunnar hálfu fyrir framleiðslu
sjógönguseiða og hagstæðrar lax-
veiðilöggjafar á íslandi er ástæða
til bjartsýni um þróun þessa sér-
sviðs laxaframleiðslu. Þó mun
slík þróun að hluta til háð því, að
tekiðverði að mestueðaöllu leyti
fyrir laxveiðar Færeyinga og
Grænlendinga á úthafi.
Mér sýnist borin von, að
íslendingar muni nokkurn tíma
verða samkeppnisfærir um mat-
fiskframleiðslu á laxi við þjóðir
sem hafa aðöllu leyti stórum betri
aðstöðu til slíkrar framleiðslu í
sjókvíum og um flutning og sölu
á ferskum laxi á heimsmarkaði,
sbr. framangreindar athuga-
semdir um matfiskeldi.
■
er tímarit þeirra,
sem vilja fylgjast
með því helsta,
sem er að gerast í
sjávarútvegi.
Fiskifélag íslands
Pósthólf 20
101 Reykjavík.
GOODYEAR
GRAND PRIX S RADIAL
— Traust og öruggt „veggrip" —
— Undirstaða úr polyesterþræði með mikla mýkt"
— Sveigjanlegar hliðar —
— Brúnalaus sóli, auðveldar fulla stjórn á bílnum "
— Sóli, sem endist ótrúlega —
MÝKT, GRIPFESTA OG GÓÐ ENDlNG
GOODfÝEA$
IhIHEKLAHF
Laugavegi 170 172 Simi 695500
396 -ÆGIR