Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1991, Blaðsíða 30

Ægir - 01.03.1991, Blaðsíða 30
138 ÆGIR 3/91 Tómas Þorvaldsson: Framtíð Fiskifélagsins A 49. Fiskiþingi sl. haust voru á dagskrá störf milliþinganefndar, um hugsanlegar breytingar á starfi Fiskifélagsins í Ijósi þess, að á meðal framlagðra gagna var hug- mynd frá skrifstofustjóra sjávarút- vegsráðuneytis, hugmynd að fisk- veiðistofnun, er tæki við veru- legum hluta af starfsemi Fiskifé- lagsins. I umræðunum um þetta mál flutti Tómas Þorvaldsson at- hyglisverða ræðu sem Ægir telur tímabært að birta, því að hér er um að ræða mál sem varðar framtíð Fiskifélagsins ef ekki beinlínis til- verurétt þess. Ræðan fer hér á eftir: Forseti, fundarstjóri, góðir þing- fulltrúar. Þetta mál er nú sennilega stærsta og umfangsmesta málið á þinginu. Það er um tilveru og framtíð Fiskifélags íslands. Ég veit, að allir viljum við veg þess sem mestan og erum nokkuð einhuga um, að vinna að því máli þannig, að Fiskifélagið megi áfram verða svipað í huga og hjörtum landsmanna og það hefur ætíð verið. Þar sem ég stend hér upp við þennan vegg og hef myndir af frumherjum Fiskifélagsinsog þeim er sátu fyrsta Fiskiþing íslands til hliðar við mig, þá dettur mér í hug að þeir hafi hugsað sem svo: „Vel skal til þess vanda, sem lengi á að standa." Það hefur tekist hjá þeim. Einnig er annað orðtak íslenskt, sem við þyrftum að hyggja að: „Það er hægara að styðja en reisa". Þessir menn hér á mynd- inni reistu Fiskifélagið en það er okkar að styðja það og finna leiðir út úr erfiðleikum. Fiskifélag íslands hefur ekki ætíð siglt lygnan sjó, öðru nær. Árin 1966-1968 fóru þeir vindar um þjóðfélagið, sem í raun og veru sögðu ekki annað en: „Það á að leggja Fiskifélagið niður, þarna koma aðeins gamlir menn saman einu sinni á ári og ræða málin, alltaf þeir sömu." Þetta varð til þess, að Alþingi setti lög um að stofna skyldi ráð, sem héti Fiski- málaráð íslands og það varð að lögum árið 1968, lög nr. 35. Efti rfarand i skipuðu menn í ráðið: Landsamband ísl. útvegs- manna, Félag ísl. botnvörpuskipa- eiganda, Sjómannasamband Is- lands, Farmanna- og fiskimanna- samband ísland, Alþýðusamband íslands, Félag fiskiðnfræðinga, Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, Sjávarafurðadeild S.Í.S., Sölu- samband ísl. fiskframleiðenda, Síldarútvegsnefnd, Félag ísl. fiski- mjölsframleiðenda, Félag ísl. niðursuðuverksmiðja, Samlag skreiðarframleiðenda, Seðlabanki íslands, Fiskveiðasjóður íslands, Fiskimálasjóður, Efnahagsstofnun- in, Fiskifélag íslands og Sjávarút- vegsráðherra, formaður. Efnislega var þetta þannig, að alþingismenn og ýmsir aðrir, sem töldu sig þurfa að hafa not af þeim gögnum, sem voru fyrir hendi í Fiskifélaginu og unnin þar töldu sig ekki eiga greiðan aðgang að þeim. Einnig töldu sumir alþingis- menn sig ekki eiga greiðan aðgang að því sem var að gerast í hinum ýmsu hagsmunafélögum í sjávar- útvegi, allt hagsmunafélög, sem áttu rætur sínar hér í Fiskifélagi íslands sem og Slysavarnafélag íslands. Ég var einn af þeim sem skip- aður var í Fiskimálaráð og í stjórn þess. Aðrir í stjórn voru: Matthías Bjarnason, þingmaður Vestfirð- inga, einn helsti hvatamaður að stofnun Fiskimálaráðs og Gunnar Guðjónsson, formaður SH. Þá var ég formaður SÍF og starfandi ' flestum öðrum félagasamtökurn ' sjávarútvegi. Við sáum fljótlega, að starfi Fiskimálaráðs var stefnt verulega a sömu braut og Fiskifélag íslands starfar. Því kem ég inn á þetta máh að búið var að minnast á það áður, hér á þinginu af Maríasi Þ. Guðmundssyni og því er þetta rifjað upp. En Fiskifélagið stóð höllum fæti, vegna þeirrar um- ræðu í þjóðfélaginu er ég gat um áðan. Því varð samkomulag um að skipa nefnd til að kanna hvort ekki væri hægt að bæta hér úr, svo vel færi og allir gætu sætt sig vio- í nefndina voru skipaðir: J°n Arnalds, þáv. ráðuneytisstjóri 1 sjávarútvegsráöuneytinu, hAat
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.