Tímarit lögfræðinga - 01.04.1986, Blaðsíða 81
19. desember, síðasti kennsludagur lagadeildar 1985, var haldinn hátið-
legur með körfuboltamóti og málflutningi fyrir bæjarþingi Orators. Eftir þing-
haldið var svo boðið upp á glögg, jafnframt því sem fram fór smákökusam-
keppni. Kvöldinu lauk svo með fjörugum dansleik á Uppi og niðri.
Hinn 30. janúar var haldinn almennur félagsfundur um mannréttindi og
alnæmi. Framsögumenn voru þau Margrét Guðnadóttir prófessor, Þór Vil-
hjálmsson hæstaréttardómari, Þorvaldur Kristinsson og Ingimar Sigurðsson,
deildarstjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Mjög skiptar skoðanir
voru á fundinum um það, hvernig standa bæri að skráningu alnæmistilfella og
kom fram ádeila á frumvarp sem nú liggur fyrir þingi um þessi mál.
Starfsemi Orators er að mörgu leyti komin í fastar skorður og skipa þar
félagsfundir, málflutningsæfingar, seminör, spila- og taflkvöld og önnur
skemmtistarfsemi mestan sess. Þá má ekki gleyma samskiptum við erlenda
stúdenta og stúdentasamtök, sem sjaldan eða aldrei hafa verið svo mikil
sem slðasta misseri.
Árið 1985 kom út XXXVIII. árgangur Úlfljóts. Ekki náðist að gefa út öll
fjögur tölublöðin 1985 fyrir áramót, en núverandi ritstjórn er þess fullviss að
sú skekkja verði leiðrétt þegar hún skilar af sér. Efni næstu tölublaða Úlf-
Ijóts verður tileinkað hinni nýju löggjöf um viðskiptabanka og hæfisreglum
í stórnsýslunni.
Stjórn Orators hefur ákveðið að láta skrá sögu félagsins. Ekki er vanþörf
á að ganga í þetta verk nú, þar sem margt er óljóst um starfsemi félagsins
fyrstu áratugina. Til að mynda er mjög á reiki, hver var fyrsti formaður fé-
lagsins. Þeir menn sem stóðu að stofnun félagsins eru að hverfa á braut
einn af öðrum og því ekki seinna vænna að ganga í verkið. Til þess að skrá
sögu félagsins hefur verið fenginn Jóhannes Sigurðsson. Hóf hann störf um
áramótin og er ætlunin að sagan verði gefin út á komandi hausti.
Lítið er til af upplýsingum um starfsemi félagsins fyrstu tvo áratugina. Væri
því vel þegið að þeir sem hafa einhver gögn undir höndum um starfsemi
félagsins á þeim tíma eða síðar, létu vita af því á skrifstofu Orators f Lög-
bergi. Einnig væri vel þegið ef þeir sem eiga myndir frá laganámi sínu og
vildu lána þær til notkunar ( bókina létu vita af því, svo að hægt sé ao nota
þær í bókina.
Þeir sem hafa áhuga á þvf að eignast bókina í haust eru vinsamlega beðn-
ir um að hafa samband við skrifstofu Orators í síma 21325 og láta skrifa sig
fyrir bókinni, svo að spara megi kostnað við sölu hennar.
Páll Hreinsson
NORRÆN NÁMSSTEFNA UM RÉTTARFAR
Norræna réttarfarsfélagið (Nordisk Forening for Procesret) efndi til þriðju
námsstefnu sinnar í Helsingfors 22. og 23. ágúst 1985. Fyrri daginn var og
haldinn félagsfundur. Umræðuefnin voru tvö á þessari námsstefnu: Dómara-
skipun í almennum dómstóli á fyrsta dómsstigi f einkamálum. Framsögu-
menn voru Erkki Havansi, prófessor í Helsingfors og Hans M. Michelson,
hæstaréttardómari í Osló, en aukaframsögumaður undirritaður. Síðara um-
75