Tímarit lögfræðinga - 01.04.1986, Blaðsíða 37
ur framkvæmdastjóri fylkisstjórnarinnar og hafði umsjón með allri
stj órnsýslu fylkisstj órnarinnar.
Um langt skeið hefur stjórnsýslan þróast á þann hátt að stór hluti
hennar hefur byggst upp utan við fylkismannsembættin þannig að
hinar einstöku umboðsstjórnir í fylkjunum hafa engan veginn allar
staðið undir stjórn eða umsjón fylkismannsins. T.d. er lögreglustjórn
óháð fylkismönnum. Landið skiptist í 53 lögreglustjórnarumdæmi (um
það bil jafnmörg og sýslurnar á 14. öld), en undir lögreglustjóra heyra
388 lénsmenn. Skólamál, vegamál og búnaðarmál eru og undanþegin
yfirstjórn fylkismanna.
Verkefni fylkismanna
Helstu verkefni fylkismanna eru þau sem hér greinir: Þeir hafa
umsjón með sveitarstjórnum og barnaverndarnefndum, annast ráðgjöf
við byggingarnefndir og hafa umsjón með framkvæmd lága og reglna
um byggingarmál og skipulagsmál. Þeir eru formenn atvinnumála-
nefnda fylkisins og ýmissa nefnda sem hafa með höndum skipun opin-
berra starfsmanna og sýslunarmanna. Þeir fara með og leiða til lykta
ýmis mál á sviði persónuréttar og sifjaréttar, veita skilnaðarleyfi, ætt-
leiðirigarleyfi og leyfi til nafnbreytingar, fara með faðernismál og mál
varðandi ríkisborgararétt, kveða upp meðlagsúrskurði, skipa setudóm-
ara og umboðsdómara, taka við umsóknum um gjafsóknarleyfi og lög-
gilda lögmenn til að fara með gjafsóknarmál. Þeir samhæfa almanna-
varnir hver í sínu fylki, og þeir sem hafa aðsetur þar sem biskup situr
eru ásamt honum stiftyfirvöld.
í hverju fylki eru sérstakir skattstjórar og skattheimtumenn,
en fylkismaðurinn er formaður yfirfasteignamatsnefndar fylkisins.
Fylkismenn fara með yfirstjórn umhverfisverndarmála í fylkinu. Fylk-
islæknir hefur umsjón með heilbrigðismálum undir stjórnsýslulégri
yfirumsjón fylkismanns en faglegri yfirumsjón heilbrigðisráðuneytis-
ins.56) Úrlausnum fylkismanna verður almennt skotið til ráðherra.
Tillögur aðalnefndarinnar
Varðandi umboðsstjórn í héraði lagði aðalnefndin áherslu á þrjú
atriði í áliti sínu 1975: Aðskilnað héraðsstjórnar og umboðsstjórnar í
fylkjunum, dreifingu verkefna og ákvörðunarvalds frá ráðuneytum og
öðrum miðstjórnarstofnunum til umboðsmanna ríkisins í héraði og sam-
56) NOU 1974:53, s. 51-57.
31