Árbók Háskóla Íslands

Árgangur

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1916, Síða 7

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1916, Síða 7
5 í lagadeild: Prófesssorarnir Lárus II. tíjarnason, Jón Kristjánsson og settur prófessor Ólajur Lárusson. — Hinn siðastnefndi var samkvæmt tillögu lagadeildar settur til þess að gegna fyrst um sinn embætti því við háskólann, er áður liafði haft Einar Arnórsson, núverandi ráðherra Islands. 1 læknadeild: Prófessorarnir Guðmundur Magnússon og Guðmundur Hannesson og aukakennarar Andrjes Fjeldsted augnlæknir, Asgeir Torfason efnafræðingur, Gunnlaugur Claessen læknir og forstöðumaður Rönlgensstofnunar háskólans, Jón Ilj. Sigurðsson héraðslæknir, Ólajur Porsleinsson eyrna-, nel'- og hálslæknir, prófessor Sœmundur tíjarnhjeðinsson holds- veikralæknir, Vilhelm Bernhöjt tannlæknir og Pórður Sveins- son geðveikralæknir. í heimspekisdeild: Prófessor dr. phil. fíjörn M. Ólsen, prófessor dr. phil. Agúst H. Bjarnason, dócent Jón Jónsson, lalínu og grisku- kennari Bjarni Jónsson frá Vogi og sendikennari dócent Holger Wiehe. Dr. phil. Alexander Jóhannesson, sem haldið hafði fyrra háskólamisserið fyrirlestra um þýsk fræði með styrk Alþingis, sótti um reglulegt kensluleyfi við háskólann síðara misserið. Veitti háskólaráðið honum það (sbr. 55. gr. reglu- gj. háskólans), og var hann tekinn inn á fyrirlestraskrá háskólans sem einkakennari (privat docent). Sú fregn harst hingað til lands í fyrra sumar (1915), að hinn frakkneski sendikennari, Alex. tíarraud, hefði fallið i stríðinu 20. júní þá um vorið. Mintist háskólaráðið þess með söknuði, og rektor háskólans vottaði ræðismanni Frakka liluttekningu út af fráfalli hins ágæta kennara. Snemma á siðara kenslumisserinu fjekk prófessor Guð- mundur Magnússon utanfararleyfi og undanþágu frá kenslu- störfum út misserið, vegna sjúkleika, er hann þurfti að leita

x

Árbók Háskóla Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.