Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1916, Síða 17
15
Nemendurnir voru æfðir í að þekkja helstu sýrur og basa,
og greina efni þessi sundur í margvíslegum efnablöndum.
Auk þess voru og æfingar í lifrænni efnarannsókn 3 stundir
einu sinni á viku síðara misserið.
Aukakennari Vilhelm Bernhöft, tannlæknir:
Hafði verklegar æfingar í tannaútdrœlti og fyllingu
tanna við ókeypis lækningu háskólans, 1 stund á viku
bæði misserin.
Heimspekisdeildin.
Prófessor dr. phil. Björn M. Ólsen.
Fyrra misserið:
1. Hjelt áfram fyrirlestrum um Bókmeniasögu íslendinga,
þar sem hætt var á síðara misseri, í einni stund á
viku. Rakin nákvæmlega Grettis saga og Finnboga
saga ramma. Lýst þeim söguþátlum, sem koma við
Húnavatnsþing og Skagafjörð (Odds þætli ófeigssonar
og Þorsleins þætti skelks, — þáttum Svaða, Arnórs kerl-
ingarnefs, Þórhalls knapps og Sneglu-Halla). Byrjað á,
en ekki til fulls lokið við, að rekja Víga-Glúms sögu.
Jafnframt rifjaði kennarinn upp eldri fyrirlestra
sina um bókmentasöguna i einni stund á viku. Var
þar fyrst lesinn almennur inngangur til bókmentasög-
unnar og sjerstaklega til skáldakveðskaparins, og síðan
lýst hinum elstu norsku skáldum (síðast Eyvindi
skáldaspilli).
2. Fór yfir Sólarljóð og Eddukvœðin, Goðrúnarkviðu
fyrstu og Sigurðarkviðu skömmu. Tvær stundir á
viku.
3. Fór yfir Greltissögu 1.—47. kap. (munnlegar æfingar)
og beygingafræðina í Málfræði íslenskrar tungu eftir
Finn Jónsson, Khöfn 1908. Ein stund á viku.