Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1916, Page 23

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1916, Page 23
21 ► Læknadeildin. 1. Upphafspróf. Undir próf í efnafræði gengu 8 stúdentar i lok siðara misseris. 2. Fyrri hluti embœttisprófs. í lok fyrra misseris lauk 1 stúdent því prófi, en þrir stúdentar í lok síðara misseris. 3. Síðari hluli embœttisprófs. Einn stúdent lauk þvi prófi í lok fyrra misseris, en um sumarið gengu tveir stúdentar undir það og stóðust báðir prófið. Um veturinn fór skriflega prófið fram dagana 1.—3. febrúar. Verkefni voru þessi: 1 handlæknisfræði: Sundurgreining á kviðarþykkildum (tumores abdominis). í lyflæknisfræði: Taugagikt (neuralgiae), einkenni, sund- urgreining eftir orsökum og meðferð. í rjettarlæknisfræði: Kona elur barn á laun. Þegarkomið er til hennar liggur barnið i grasinu og fjdgjan ókomin. Yfirsetu- konan kemur að vörmu spori. Hún skilur á milli, er í efa um það, hvort barnið sje dautt, reynir að lífga það á venjulegan liátt, en tekst ekki. Hún slcýrir lögreglustjóra frá málavöxlum. Hann biður lækni kryfja barnslikið og aðgæta vandlega, hvort barnið muni hafa fæðst dautt eða lifandi. Engir áverkar sjást á líkinu. — Hvernig á að haga likskurðinum? Hvað finst ef barnið fæddist dautt? Hvað finst ef það fæddist lifandi? Prófinu var öllu lokið 14. febrúar. Skriflega prófið um sumarið fór fram dagana 2,—5. júní. Verkefni voru þessi: í handlæknisfræði: Hvernig er farið að þekkja garna- stiflu og gera við henni. í lyflæknisfræði: Blóð í saur: Hvernig á að finna það? Af hverju orsakast það? Og hvernig á að aðgreina orsakirnar? í rjettarlæknisfræði: Hvernig er farið að komast að þvi, hvort maður er lifs eða liðinn?

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.