Búnaðarrit - 01.01.1904, Blaðsíða 74
70
þær standi nákvæmlega í lóð, því ef þær hallast eða geta
skolfið, þá fara þær strax í óiag, sérstaklega Alfa Colibri
vegna hennar þunga skilkarls og sundurlausa hala, því
þarf hún að vera svo nálcvœmlega rétt á borðinu, annars
fer hún verst með sig af öllum skilvindum hér á landi.
Mjög mikið ríður og á að brúkuð sé vatnslaus olía, því
hún storknar ekki í kulda, en töluvert er hún dýrari en
sú olía, sem vanalega flyzt, en aðgætandi er að þessi góða
olía verður ódýrari til frambúðar. Við að brúka þá ódýru
fyilast pípurnar af óhreinindum og þar af leiðandi gsat.a
menn ekki að því, að maskínan er að eyðiieggjast, þegar
áburðurinn kemst ekki inn i hana sjálfa. Þessa góðu olíu
má fá frá mér.“
Sig. Jónsson.
Plæging.
Búnaðarfélag íslands hefir veitt nokkrum búnaðarfé-
lögum styrk til plægingar síðastliðið ár, 7 kr. á dagsláttu,
með þeim skilyrðum, að plæingin stæði yfir 6 vikna tíma,
að minsta kosti, með sama manni og sömu hestum, að
svo miklu leyt.i sem unt væri, og hafa félaginu verið send-
ar skýrslur um verkið.
Búnaöarfélögin í Andaláis-, Jieylcholtsdals- og
Stafholtstungna-hreppum sameinuðu sig um einn plæg-
ingamann, Brynjólf búfræðing Guðmundsson á Hvann-
eyri. Vann hann 12 vikur að plægin'gu og herfingu. Hafði
4 hesta og 1 mann til hjálpar. Dagkaup 9,10 kr., að
meðtöldu fæði, reiknuðu 80 aura á dag. Plægði hann
alls rúmar 31 dagsl. Varð kostnaðurinn alls við að plægja
dagsláttu hverja, að meðaltali, 20,02 kr., minst 12,26 kr.