Búnaðarrit - 01.01.1904, Blaðsíða 283
279
ftessi áhöld, og að það sé með svipuðu íyrirkomulagi og
■skóiinn.
Þá ætti skólinn að ganga á undan í því að útvega
sér góð áhöld. Það eru margir sem heimsækja skólann,
■og ætti því vel við, að hann væri fyrirmynd i því sem
■öðru, er lítur að smjörgerð.
Eg hefi nú þegar með fáum orðum gert grein fyrir
flutningi skóians til Ilvítárvalia og núverandi fyrirkomu-
lagi hans, og hvernig á þvi stendur, að hann hefur orðið
■dýrari en búist var við. Loks vil eg gefa stutta lýsingu
af sjálfu skólahúsinu og öðrum húsakynnum, er standa
í sambandi við skólann. — Skólabyggingin er 18X9 álnir,
með lÞ/jXö álna skúr, sem notaður er til mjólkurmeð-
ferðarinnar. Húsið sjálft er einloftað með 2 álna porti.
Á góiflnu eða niðri er skrifstofa, dagleg stofa, eldhús,
svefnherbergi, matargeymslukiefi og gangur með stiga
upp á loftið.
Á loftinu er skólastofan 9X7 álnir, svefnherbergi
nemendanna, gestaherbergi og klæðaskápur.
Að húsinu iiggur forstofa 5x7 álnir, skift í tvent,
með kjallara undir. Mjólkurmeðferðar-skálanum er skift
í þrent,: Móttökuherbergi, þar er og hitunarvélin, smjör-
herbergið og mótorklefinn.
Áhöld skólans eru: strokkur, vatnsdæla, hitunará-
hald, kælingaráhald, ostapressa, smjörhnoðunarvól, Ger-
bers-fitumæiir, 2 skilvindur, auk bala og annara þvotta-
áhalda. Víð rekstur skólans eða rjómabúsins er notaður
steinolíu-mótor með 2 hesta afli. Félagsmenn rjómabús-
íns eiga mótorinn.
Hvítárvöllura 1. nóv. 1904,
H. Grönfeldt.