Alþýðumaðurinn - 30.05.1933, Side 1
I • '
ALÞÝÐUM AÐD RINN
III. árg.
Akureyri, ■Þriðjudaginn 30. Maí 1933.
Síldarvinnu-
kaupið.
Eins og sést á auglýsingu á ððrum
stað hér ■ blaðinu í dag, hafa samn-
ingar tekist milli Verklýðsfélags Akur-
eyrar og Vinnuveitendafélags Akureyr-
ar um kaup við sildarverkun í sumar.
— Óskaði Vinnuveitendafélagið eftir
að gera samning við Verklýðsfélagið
um þessa vinnu, og var því stjórn
Verklýðsfélagsins falið á fundi félags-
ins 24. þ. m,, að semja fyrir hönd
þess við Vinnuveitendafélagið, ef við-
unandi samningar næðust. Samþykti
fundurinn að stjórnin tæki með sér
tvær ráðgefandi konur, sem sérstak-
lega væru vanar sildarverkun. Valdi
stjórnin þær Olgu Olgeirsdóttur og
Indíðnu Daviðsdóttur til þess.
Á Föstudagskvöldið var, komu
stjórnit nefndra félaga saman til samn-
ingagerðar um kaupið við áðurnefnda
vinnu, og varð þar að samningum,
sem auglýsingin ,um slldarvinnukaupið
ber með sér og sem birt er hér í
blaðinu. —
í fyrra sömdu stjórnir Verkamanna-
félagsins og Einingar við síldarsalt-
endur um vinnu við síldarsöltun. —
Það sem á hefir unnist með samn-
ingum Verklýðsfélags Akureyrar nú
við Vinnuveitendafélagið, frá samning-
um Verkamannafélagsins og Einingar
í fyrra, er: 50 aura hækkun á tíma-
kaupi karlmanna í helgidagavinnu og
10 aura hækkun í eftirvinnu. Qildir
því taxti Verklýðsfélagsins, sem settur
var í vetur' við síldarverkun, eins og
við aðra vinnu hér í bæ, en í fyrra
sömdu síldarsaltendur við félögin um
lægri karlmannataxta en gilti við aðra
vinnu í bænum.
Ennfremur .hefir nú fengist þessi
hækkun á kaupi kvenua frá taxtanum
í fyrra:
Dagvinna kvenna hækkar úr 85 au.
á klukkustund upp í 90 aura. Kverk-
un og söltun síldar úr 90 aurum á
tunnu í 95 aura. — Að kverka og
magadraga tunnu síldar úr kr. 1,60 í
kr. 1,75, og flokkun síldar, sem eng-
inn taxti var um áður, greiðist nú
með kr. 0,30 fyrir hverja tunnu, sem
flokkuð er.
Þegar á það er litið hvernig sljórn-
ir kommúnistafélaganna gengu frá
samningunum í fyrra við síldarsalt-
endur, þar sem vinnulaunin voru á
öllum sviðum lækkuð, og sumstaðar
stórkostlega mikið frá því sem áður
hafði verið, eins og í helgidagavinn-
unni, mun óhætt að fullyrða að þeir
samningar, sem Verklýðsfélagið hefir
nú gert við Vinnuveitendafélagið um
síldarvinnukaupið séu vel viðunandi,
ekki síst þegar litið er til hins mikla
óhugar, sem nú er í útgerðar-
mönnum til síldveiðanna í sumar
vegna þeirra ókjara, sem norsku samn-
ingarnir hljóta að valda þeim og öðr-
um, sem síldveiðar ætla að stunda í
sumar. —
Tunnusmíðinu
er nú nær því lokið, og hafa ver-
iö smíðaðar rúmar 20 þús. tunnur.
Hafa — að meðaltali — verið smíð-
aðar 245 tunnur á vakt, eða heldur
meira en bæjarstjórn áætlaði í vet-
ur. Útkoman á tunnusmíðinu mun
veröa góö, og hefði orðið enn betri,
ef Verkamannafélagið hefði ekki
tafið byrjun verksins um langan
tíma, og spilt þannig fyrir verka-
mönnum. »Verkam.« á Laugar-
29. tbl.
NYJA BIO W
Miövikudagskvöld kl. 9:
Hundakæti í
Gög og Gokke
Tal og hljómmynd f 9 þáttum.
Aðalhlutverkin leika:
STAN LAUREL og
OLIVER HARDY.
(Litli og Stóri Ameríku-
manna).
Sprenghlægileg mynd.
daginn var með þvætting, um það,
að brotnir séu samningar á verka-
mönnunum, aí því ekki sé unnið úr
öllu tunnuefninu, er búið var að
kaupa þegar samningar voru gerðir
um verkið í vetur. Það má fræða
»Verkam.r um það, að það er búið
að vinna úr rneira efni, en þá var
búið að kaupa inn, enda er þessi
skapvonska ritara »Verkam.«, sem
fær þá til aö fara með fjarstæður,
sprottinn af því einu, að verkið hef-
ir gengið eins vel og »Alþm.« áætl-
aði í vetur og bygði tillögur sínar og
stuðning við þetta mál á, Þekking-
arleysi þessara málskrjóða »Verkam.«
lýsir sér bara enn einu sinni í þeirri
staðhæfingu þeirra, að vinnan úr
úrgangsefninu muni gera útkomuna
á tunnusmíðinu óhagstæða fyrir bæj-
arstjórn. »Verkam.« skal fræddur
um það, að það er alls ekki mein-
ingin að viðhafa »Rauðaplans-«
vinnubrögð Einars Olgeirssonar og
siglfirskra kornmúnista, þegar unnið